Hamilton: Nú er rétti tíminn til að gerast goðsögn Birgir Þór Harðarson skrifar 11. mars 2013 19:00 Hamilton er vongóður fyrir keppnistímabilið sem hefst um næstu helgi í Ástralíu.
Lewis Hamilton segist vera ólmur í að vinna fleiri heimsmeistaratitla og stimpla sig endanlega inn sem ökumann sem vert er að minnast í framtíðinni. Hann segir andrúmsloftið hjá Mercedes-liðinu vera tilvalið til þess. Hamilton yfirgaf McLaren-liðið í vetur eftir 13 ára samstarf. Hann er aðeins 28 ára og er vongóður fyrir keppnistímabilið sem hefst um næstu helgi í Ástralíu. Hann hefur unnið einn heimsmeistaratitil, árið 2008, á hans öðru ári í Formúlu 1. „Ég er enn hungraður því ég hef ekki gert neitt stórkoslegt! Ég er ekki búinn að vinna allar heimsmeistarakeppnirnar sem ég hef tekið þátt í og ekki öll mótin," sagði Hamilton. „Andrúmsloftið hjá Mercedes er allt öðruvísi og ég er mjög ánægður með stöðu mína hér. Öll umgjörðin er mér að skapi og ég get breitt út vængina eins og ég vil." „Markmiðið er að snúa spilinu við fyrir þetta lið og vinna heimsmeistaratitla. Og næstu árin ætla ég að reyna að vinna eins marga titla og ég get. Einn yrði frábær og fleiri myndu verða mun betri." „Við viljum allir vera númer 1 og ég var það í smá tíma þangað til Sebastian Vettel skákaði mig. Fernando Alonso hefur einnig verið öflugur en ég vil vera á undan báðum. Vettel er jafnvel álitinn jafn frábær og Michael Schumacher. Ég vil ekki vera skráður undir flokknum „aðrir þátttakendur"." Hamilton skrifaði undir þriggja ára samning við Mercedes-liðið sem talinn er vera 60 milljón punda virði sem jafngildir rúmlega 11 milljörðum íslenskra króna. Hann segist þó ekki vera hræddur við að berjast við fyrrum liðsfélaga sinn hjá McLaren, Jenson Button. Frekar óttast hann ökumann ársins 2012, Fernando Alonso. „Ég er ekki þannig manneskja sem vill hefna sín á gamla liðinu. En einhverntíma munum við sigra þá á brautinni og það verður örugglega gaman, ekki af því að það eru þeir heldur allir aðrir verða fyrir aftan okkur líka," sagði Hamilton. „Svo keppnin á milli mín og Button er ekki eitthvað sem ég hef sérstakar áhyggjur af. Ég er meira spenntur fyrir keppni á milli okkar Alonso. Sá er einn af fljótustu ökumönnum í heimi og allir munu eiga í erfiðleikum með hann." Sex ár verða í sumar liðin frá því að upp úr sauð milli Hamilton og Alonso hjá McLaren. Því einvígi lauk með því að báðir hlutu 109 stig í öðru og þriðja sæti titilbaráttunni. Kimi Raikkönen vann, þá í Ferrari-bíl.Hamilton segir nýja Mercedes-bílinn hafa komið sér á óvart og telur möguleika sína góða.
Formúla Mest lesið Gunnar Nelson með ákall til ráðamanna: „Er hálf galið“ Sport Landsliðskonur Íran strjúka eftir Asíumótið Fótbolti Hrósar Heimi og vill að hann hermi eftir Arsenal Fótbolti Cantona á Ströndum: Leikur í kvikmynd á Hólmavík Fótbolti Tíu leikmönnum bannað að koma til Bandaríkjanna Fótbolti „Ísak getur verið okkar framtíðar markvörður“ Handbolti Fimmtán ára fótboltastelpa hneig niður í leik og lést Enski boltinn Icelandair flaug Liverpool til Istanbúl Fótbolti Besta sætið: Af hverju er ekki búið að semja við Snorra? Sport Truflaður af Aroni Pálmars i viðtali Sport Fleiri fréttir Verstappen tikkar af golulistanum Hamilton bjartsýnn á að Ferrari geti orðið meistari Komst hjá hörðum árekstri með ótrúlegum viðbrögðum Mercedes á toppnum en Ferrari fullt eftirsjár Russell á ráspól en Verstappen klessti út í kant Týndi sjálfum sér: „Sérð þessa manneskju ekki aftur“ Keppnir í hættu vegna stríðsins Hræddur um að hljóta varanlegan taugaskaða við að aka Formúlu 1 bíl Hamilton skýtur fast á andstæðinga sína Hamilton bjartsýnn: „DNA-ið mitt er í þessum bíl“ „Stormur í vatnsglasi“ Lewis Hamilton finnst skemmtilegra að keyra nýja F1-bílinn Finnst ekki skemmtilegt að keyra nýja Formúlu 1 bílinn Formúlu 1 ökuþór slapp ómeiddur frá bílslysi Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Sjá meira