Martin átti metið bara í sólarhring - Elvar nú sá yngsti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. mars 2013 10:00 Elvar Már Friðriksson. Mynd/Valli
Fréttablaðið greindi frá því í morgun að Martin Hermannsson hafi sett nýtt met á fimmtudagskvöldið með því að vera yngsti leikmaðurinn sem nær að skora yfir 30 stig í einum í leik í úrslitakeppni karla í körfubolta. Það var alveg hárrétt en Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson bætti hinsvegar metið eftir að Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöldi. Martin átti því bara metið í einn sólarhring en það hefði verið í eigu Brynjars Þórs Björnssonar í sex ár þar á undan. Elvar Már og Martin eru báðir fæddir árið 1994, Martin 16. september en Elvar 11. nóvember. Martin var 18 ára, 6 mánaða og 5 daga þegar hann braut 30 stiga múrinn á fimmtudagskvöld en Elvar Már var aðeins 18 ára, 4 mánaða og 11 daga þegar hann skoraði 35 stig í Stykkishólmi í gærkvöldi. Elvar Már skoraði 22 stig í fyrri hálfleiknum og var kominn með 30 stig fyrir lok þriðja leikhlutans. Honum tókst þó ekki að skora á síðustu tveimur og hálfri mínútu leiksins ekki frekar en öðrum leikmönnum Njarðvíkurliðsins og á meðan tryggði Snæfellingar sér 79-78 sigur. Það verður fróðlegt að fylgjast með þeim Elvari og Martin í næstu leikjum í úrslitakeppninni og áhugavert hvort að þeim takist að fylgja eftir þessu eftir. Hér fyrir neðan er síðan uppfærður listi frá því í Fréttablaðinu í morgun.Yngstu leikmenn til þess að skora 30 stig í einum leik í úrslitakeppni:1. sæti Elvar Már Friðriksson 18 ára, 4 mánaða og 11 daga 35 stig á móti Snæfelli 22. mars 20132. sæti Martin Hermannsson, KR 18 ára, 6 mánaða og 5 daga 33 stig á móti Þór Þorlákshöfn 21. mars 20133. sæti Brynjar Þór Björnsson 18 ára, 8 mánaða og 20 daga 31 stig á móti Snæfelli 31. mars 20074. sæti Logi Gunnarsson, Njarðvík 19 ára, 7 mánaða og 5 daga 36 stig á móti Tindastól 17. apríl 20015. sæti Logi Gunnarsson, Njarðvík 19 ára, 7 mánaða og 12 daga 36 stig á móti Tindastól 17. apríl 20016. sæti Hjörtur Harðarson, Grindavík 21 árs, 11 mánaða og 22 daga 37 stig á móti Njarðvík 7. apríl 1994
Dominos-deild karla Mest lesið Pálmi í ótímabundið leyfi Íslenski boltinn Sá húsið sitt brenna til kaldra kola Körfubolti Erfitt að heyra hvað Orri hefur þjáðst Fótbolti Eigandi Nott.Forest ákærður fyrir tengsl við glæpagengi Sport Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Fótbolti Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? Fótbolti Fylgist spenntur með Viktori: „Þetta er með ólíkindum“ Fótbolti Endurkoma ársins: Á Norðurlandamót aðeins ellefu mánuðum eftir hálsbrot Sport Greint frá ráðningu á vef nýja þjálfarans Handbolti Hlýnun jarðar á að hafa mikil áhrif á maraþonhlaup í heimnum Sport Fleiri fréttir Sá húsið sitt brenna til kaldra kola „Ha, átti ég metið?“ Rebekka Rut nýliði í fyrsta landsliðshóp Salminen Uppgjörið: KR - Grindavík 68-85 | Gestirnir á toppinn Valskonur niðurlægðu Íslandsmeistarana Tryggvi með flest fráköst í Evrópusigri Sjaldgæf 30-20-10 þrenna í Síkinu í gær Sömu félög að spila í tveimur íþróttum í sama húsinu á sama tíma Kristófer Acox kallar sig glæpamann Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Stjarnan með þægilegan sigur á nýliðunum Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Íslandsmeistararnir mæta bikarmeisturunum Skagamenn senda Kanann heim Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Ólíkar niðurstöður hjá landsliðsmönnunum Er Tóti Túrbó ofmetinn? „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Góður lokaleikhluti tryggði Njarðvík sigurinn Styrmir með þrettán í öruggum sigri Zamora Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Blikar áfram með fullt hús stiga Sjá meira