Aflaverðmætið jókst um 6,6 milljarða milli ára 20. mars 2013 09:06
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 160,4 milljörðum króna í fyrra, samanborið við 153,9 milljarða kr. árið 2011. Aflaverðmæti hefur því aukist um 6,6 milljarða eða um 4,3% á milli ára. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að aflaverðmæti botnfisks var 96,5 milljarðar sem er 0,7% aukning frá árinu 2011 þegar aflaverðmætið nam 95,9 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 49,5 milljarðar sem er 6,8% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu, sem nam 12,2 milljörðum, jókst um 1,8% milli ára en verðmæti karfaaflans, sem nam 14,5 milljörðum dróst saman um 2,9% miðað við árið 2011. Verðmæti ufsaaflans jókst um 3,4% milli ára og nam 9,4 milljörðum króna á árinu 2012. Verðmæti uppsjávarafla nam um 46,7 milljörðum króna árið 2012, sem er 8,1% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti loðnu nam 13,5 milljörðum sem er 52,3% aukning samanborið við árið 2011 og verðmæti kolmunna, sem var 2,7 milljarðar árið 2012, jókst um rúmlega 2,4 milljarða milli ára. Aflaverðmæti síldar nam 14,6 milljörðum króna árið 2012 sem er 0,8% aukning milli ára. Hins vegar dróst aflaverðmæti makríls saman um 19,1% frá fyrra ári og var um 14,4 milljarðar. Nær enginn annar uppsjávarafli var veiddur á árinu. Aflaverðmæti flatfisksafla nam um 10,6 milljörðum króna, sem er 2,7% aukning frá 2011. Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 74,7 milljörðum króna á árinu 2012 og jókst um 16,0% milli ára. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 7,1% milli ára og nam 20,7 milljörðum króna. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 58,6 milljörðum árið 2012 sem er 6,3% samdráttur frá fyrra ári en verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam rúmum 5,4 milljörðum króna, sem er 18,0% samdráttur frá árinu 2011.
Mest lesið Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Hvernig erfist séreignin? Viðskipti innlent Kemur frá Icelandair til Varðar Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Siggi til Varist Viðskipti innlent Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Viðskipti innlent Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Viðskipti innlent Peningaskápurinn ... Viðskipti innlent Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Sjá meira