Midi.is komið í eigu 365 miðla 5. apríl 2013 10:43 Ari Edwald forstjóri 365 miðla.
365 miðlar hafa keypt Midi.is. „Við erum afar ánægð með þessa lendingu og þetta á eftir að verða mikið framfararskref fyrir okkur," segir Ólafur Thorarensen, framkvæmdastjóri Midi.is, þegar ljóst er að Samkeppniseftilitið hefur samþykkt kaup 365 miðla á félaginu. Ólafur segir í tilkynningu vegna kaupanna að Midi.is hafi verið í söluferli í um tveggja ára skeið og því hafi verið erfitt að halda uppi fullum dampi í rekstrinum. Með kaupum 365 miðla á félaginu sé allri óvissu eitt. „Við höfum nú fengið öflugan bakhjarl sem ætlar sér stóra hluti með Midi.is og það er mjög mikilvægt fyrir okkur," segir Ólafur! Ari Edwald, forstjóri 365, segir starfsemi Midi.is falla vel að rekstri 365. Nú verði skoðað með hvaða hætti megi bæta þjónustuna við núverandi viðskiptavini og hvar séu tækifæri til að bæta í og gera enn betur. Hann segir Samkeppniseftirlitið hafa sett ákveðna fyrirvara um kaupin. „Við munum reka Midi.is í sér félagi og erum bundin af ákveðnum reglum um hvernig við getum nýtt miðla 365 fyrir Midi.is en það mun engin áhrif hafa á þau áform okkar að gera þetta sterka vörumerki enn öflugra," segir Ari. Stjórn Midi.is skipa Þórður Már Jóhannesson, sem er formaður, Erling Freyr Guðmundsson og Svanur Valgeirsson.
Mest lesið Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Hvernig erfist séreignin? Viðskipti innlent Kemur frá Icelandair til Varðar Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Siggi til Varist Viðskipti innlent Peningaskápurinn ... Viðskipti innlent Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Viðskipti innlent Grindvíkingar fá fyrsta fimm stjörnu hótelið Viðskipti innlent Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Sjá meira