Datt næstum því úr sófanum þegar ég sá Kára spila Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. apríl 2013 16:43 Kári Kristján Kristjánsson. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Wetzlar hefur ákveðið að segja upp samningi sínum við íslenska landsliðslínumanninn Kára Kristjánsson eftir að Kári lék með íslenska landsliðinu í Slóveníu í gær. Félagið vissi ekki betur en að Kári væri í veikindaleyfi heima á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu HSG Wetzlar. Kári var á sínu síðasta tímabil með HSG Wetzlar en hann er á leiðinni til danska úrvalsdeildarliðsins Bjerringbro-Silkeborg. Samingur Kára og Wetzlar var til 30. júní 2013. „Ég horfði á leikinn í beinni á netinu og datt næstum því úr sófanum þegar ég sá Kára spila. Við erum agndofa, mjög vonsviknir og virkilega reiðir vegna framkomu hans gagnvart okkar félagi," sagði Björn Seipp, framkvæmdastjóri þýska félagsins. Kári Kristján gekkst undir aðgerð í febrúar þar sem góðkynja æxli var fjarlægt úr baki hans. Síðan þá hefur hann ekkert spilað með Wetzlar og forráðamenn liðsins bjuggust ekki við að hann myndi fyrst geta spilað aftur í maí. Kári spilaði stórt hlutverk í sigri Íslands gegn Slóveníu í gær. Hann kom Íslandi yfir, 28-27, í fyrsta skipti í leiknum þegar tvær mínútur voru eftir og gaf svo á Guðjón Val Sigurðsson er hann tryggði Íslandi sigur í lokasókn sinni í leiknum.
Íslenski handboltinn Handbolti Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira