Töluverð aukning ferðamanna frá áramótum 4. apríl 2013 16:10
Um 49 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í nýliðnum marsmánuði samkvæmt talningum Ferðamálastofu eða um 15 þúsund fleiri en í sama mánuði árið 2012. Um er að ræða 45,5% aukningu milli ára. Þegar litið er til fjölda ferðamanna í marsmánuði á tólf ára tímabili (2002-2013) hefur orðið að jafnaði 11,4% aukningu milli ára. Fjöldi ferðamanna hefur nærri þrefaldast frá árinu 2002 en þá komu 17 þúsund ferðamenn til landsins. Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í mars frá Bretlandi (31,6%). Ferðamenn frá Bandaríkjunum (14,2%), Noregi (7,3%), Þýskalandi (6,4%), Danmörku (5,6%), Frakklandi (5,0%) og Svíþjóð (4,3%) fylgdu þar á eftir. Samtals voru þessar sjö þjóðir þrír fjórðu ferðamanna í mars. Af einstaka þjóðum fjölgaði Bretum, Bandaríkjamönnum og Þjóðverjum mest milli ára í mars. Þannig komu 6.351 fleiri Bretar í mars í ár en í fyrra, 2.449 fleiri Bandaríkjamenn og 1.102 fleiri Þjóðverjar. Þegar litið er til einstakra markaðssvæða má sjá 69,7% aukningu frá Bretlandi, 61,2% aukningu frá N-Ameríku, 38,7% frá Mið- og Suður Evrópu og 50,5% frá löndum sem eru flokkuð undir ,,annað". Aukning Norðurlandabúa var í minna mæli eða 10,8%. Það sem af er ári hafa 122.137 erlendir ferðamenn farið frá landinu eða 34 þúsund fleiri en á sama tímabili í fyrra. Um er að ræða 39,3% aukningu milli ára. Verulega aukningu má sjá frá flestum mörkuðum; Bretum hefur fjölgað um 55,5%, N-Ameríkönum um 43,2%, Mið- og S-Evrópubúum um 39,5% og ferðamönnum frá öðrum mörkuðum um 42,6%. Norðurlandabúum hefur hins vegar fjölgað minna eða um 9,5%. Um 27 þúsund Íslendingar fóru utan í mars síðastliðnum, 850 fleiri en í mars árið 2012. Frá áramótum hafa 71.434 Íslendingar farið utan eða svipaður fjöldi og fór utan árið 2012. Hægt er að nálgast nákvæmari tölfræði hér.
Mest lesið Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Hvernig erfist séreignin? Viðskipti innlent Kemur frá Icelandair til Varðar Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Siggi til Varist Viðskipti innlent Peningaskápurinn ... Viðskipti innlent Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Viðskipti innlent Grindvíkingar fá fyrsta fimm stjörnu hótelið Viðskipti innlent Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Sjá meira