Besta rekstrarár í sögu Auðar Capital Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. apríl 2013 10:02 Ný stjórn Auðar Capital var kjörin.
Kristín Pétursdóttir lætur af störfum forstjóra Auðar Capital og Hannes Frímann Hrólfsson tekur við sem forstjóri félagsins. Þetta var tilkynnt á aðalfundi félagsins í gær, þar sem jafnframt var kosin ný stjórn. Kristín er nýr stjórnarformaður. Félagið skilaði 162 milljóna króna hagnaði í fyrra. Rekstrarárið var það besta í sex ára sögu Auðar Capital og einkenndist af auknum umsvifum og góðri ávöxtun. Tekjur jukust á milli ára um 300 milljónir króna. Alls námu þær um 808 milljónum króna og hafa þóknanatekjur aukist jafnt og þétt frá stofnun. Rekstrarkostnaður lækkaði milli ára og nam 654 milljónum króna. Arðsemi eigin fjár var 14,5%. Félagið er skuldlaust og nemur eigið fé þess um 1,2 milljörðum króna. Eiginfjárhlutfall (CAD) er 44,3%. Auður Capital hefur lokið fjármögnun á nýjum 5 milljarða króna framtakssjóði, Eddu slhf. Um 30 stofnana- og fagfjárfestar leggja sjóðnum til fé, m.a. flestir af stærstu lífeyrissjóðum landsins. Edda er langtímafjárfestir sem mun fjárfesta í óskráðum fyrirtækjum á Íslandi. Sjóðurinn byggir á reynslu Auðar Capital af rekstri framtakssjóða og þeim fjárfestingartækifærum sem til staðar eru í íslenskum fyrirtækjum. Auður Capital hefur rekið framtakssjóðinn Auði 1 í fimm ár, en hann hefur á þeim tíma fjárfest fyrir tæplega þrjá milljarða króna í níu íslenskum fyrirtækjum með góðum árangri. Á aðalfundinum var félaginu kosin ný stjórn undir forystu Kristínar Pétursdóttur sem hefur frá upphafi verið forstjóri Auðar Capital. Í stjórninni eru auk hennar Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson og Ingólfur Guðmundsson. Við starfi Kristínar sem forstjóri tekur Hannes Frímann Hrólfsson sem verið hefur aðstoðarforstjóri félagsins undanfarin misseri.
Mest lesið Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Sófi fyrir nýsköpun Viðskipti innlent Engin grundvallarbreyting Viðskipti innlent Isavia kærir úrskurðinn Viðskipti innlent Vínbúðir loka og neftóbaksframleiðsla stöðvast fari félagsmenn SFR í verkfall Viðskipti innlent Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Viðskipti innlent Landsbankinn lækkar vexti Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Stýrivextir óbreyttir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Sjá meira