Vaxtakrafan á erlendum skuldabréfum ríkisins snarlækkar 18. apríl 2013 12:24
Ávöxtunarkrafa á erlendum skuldabréfaútgáfum ríkissjóðs hefur lækkað verulega frá miðju síðasta ári. Endurspeglar sú þróun bæði aukið traust á íslenska ríkinu sem skuldara og einnig minni áhættufælni á erlendum skuldabréfamörkuðum. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þetta sé afar jákvæð þróun sem bæði bendir til þess að stjórnvöld muni geta endurfjármagnað skuldsettan gjaldeyrisforða Seðlabankans á tiltölulega hagstæðum kjörum þegar fram í sækir, og eins að aðrir stórir innlendir lántakar í erlendri mynt eigi greiðari leið að ásættanlegri endurfjármögnun en áður. Ríkissjóður hefur á undanförnum misserum gefið út tvö skuldabréf í Bandaríkjadollurum í því skyni að fjármagna gjaldeyrisforða Seðlabankans. Hið fyrra, sem er með lokagjalddaga í júní 2016, var gefið út sumarið 2011 og ber 4,875% nafnvexti. Síðara bréfið, sem er með lokagjalddaga í maí 2022, var gefið út í maí árið 2012 og ber 5,875% nafnvexti. Hvor útgáfa um sig er 1 milljarðar dollara að stærð. Skemmst er frá því að segja að ávöxtunarkrafa beggja bréfanna hefur farið hríðlækkandi undanfarið. Má þar nefna að um mitt síðasta ár var krafa 2016-bréfsins 4,8% og krafa 2022-bréfsins 6,2%. Í gær var krafa fyrrnefnda bréfsins hins vegar komin niður í 2,7% og krafa þess síðarnefnda niður í 3,7%. Álag bréfanna miðað við sambærileg bandarísk ríkisskuldabréf hefur lækkað að sama skapi. Álagið var 4,3% á styttra bréfinu og 4,6% á því lengra í júlíbyrjun í fyrra. Í gær var álagið hins vegar komið niður í 2,3% fyrir styttra bréfið og 2,0% fyrir það lengra. Á þessu tímabili hefur skuldatryggingaálag á íslenska ríkið einnig helmingast. Álagið var 298 punktar í júnílok í fyrra en var í gær 143 punktar.
Mest lesið Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Sófi fyrir nýsköpun Viðskipti innlent Engin grundvallarbreyting Viðskipti innlent Isavia kærir úrskurðinn Viðskipti innlent Vínbúðir loka og neftóbaksframleiðsla stöðvast fari félagsmenn SFR í verkfall Viðskipti innlent Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Viðskipti innlent Landsbankinn lækkar vexti Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Stýrivextir óbreyttir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Sjá meira