Þorsteinn Már segir að Samherji hafi hugsanlega gert mistök í gjaldeyrismálum 18. apríl 2013 08:39
Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja segir að útgerðin hafi hugsanlega gert mistök í tengslum við gjaldeyrislög en ásakanir um kerfisbundið svindl væru fráleitar. Þetta kom fram í viðtali við Þorstein Má í morgunþætti Ríkisútvarpsins í morgun. Í fréttum í gær kom fram að Seðlabankinn hefði vísað meintum brotum Samherja á gjaldeyrislögunum til sérstaks saksóknara. Á vefsíðu Ríkisútvarpsins kemur fram að Þorsteinn Már segir að það væri sér léttir að nú væri komin hreyfing á rannsókn Seðlabankans á Samherja. Hann hafnaði ásökunum um kerfisbundið svindl en sagði að mistök kynnu að hafa gerst. Seðlabankinn rannsakaði hugsanleg brot Samherja vegna útflutnings á fiski. „Þorsteinn Már ítrekaði fyrri orð sín um að stofnað hefði verið til rannsóknarinnar á röngum forsendum,“ segir á vefsíðunni. „Þorsteinn sagðist ekki hafa fengið formlegar upplýsingar um málið frá Seðlabankanum um framgang málsins. Lögmaður félagsins hefði fengið stutt samtal um þetta í gær, sagði Þorsteinn og kvað Seðlabankann hafa komið málinu í fjölmiðla í gær.“ Þá sagði Þorsteinn Már að í öllum fyrirtækjum væru gerð mistök og sennilega mætti finna eitthvað sem betur hefði mátt gera hjá Samherja. Í marga mánuði eftir hrun hefðu menn unnið myrkranna á milli við að láta fyrirtækið ganga, vegna þess að greiðslufrestir og bankafærslur hefðu riðlast. Aðspurður sagðist hann þó ekki telja að fyrirtækið hefði gert eitthvað sem stangaðist á við lög.
Mest lesið Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Sófi fyrir nýsköpun Viðskipti innlent Engin grundvallarbreyting Viðskipti innlent Isavia kærir úrskurðinn Viðskipti innlent Vínbúðir loka og neftóbaksframleiðsla stöðvast fari félagsmenn SFR í verkfall Viðskipti innlent Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Viðskipti innlent Landsbankinn lækkar vexti Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Stýrivextir óbreyttir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Sjá meira