Búið að úthluta 576 milljónum til ferðamannaverkefna 17. apríl 2013 12:25
Í dag var tilkynnt um úthlutun 278 milljóna króna úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Þetta er þriðja úthlutun ársins og hefur þá alls rúmum 576 milljónum króna verið úthlutað úr sjóðnum á árinu. Í tilkynningu segir að Framkvæmdasjóður Ferðamannastaða sé fjármagnaður með 3/5 hlutum gistináttagjalds en að auki var sjóðurinn stórefldur með fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar og ákveðið að hann fái árlega 500 milljónir króna aukalega árin 2013-2015 til að hraða úrbótum á fjölsóttum ferðamannastöðum og byggja upp nýja, allt með sérstakri áherslu á vernd umhverfis. Sömu ár renna 250 milljónir árlega úr fjárfestingaáætlun til þjóðgarða og friðlýstra svæða. „Í ár stefnir í enn eitt metið í íslenskri ferðaþjónustu og því mun álagið á ferðamannastaði í landinu enn aukast. Á okkur hvílir sú skylda að náttúran beri ekki skaða af og með því að stórefla Framkvæmdasjóð ferðamannastaða er verið að lyfta grettistaki í fjölgun ferðamannastaða og um leið hlúð að náttúru viðkvæmra svæða. Við erum að leggja grunn að því að íslensk náttúra og ferðaþjónusta geti blómstrað hlið við hlið og þetta er lang stærsta átak sem nokkru sinni hefur verið ráðist í af þessu tagi“ segir Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra í tilkynningunni. Auglýst var eftir umsóknum 2. febrúar 2013 en umsóknarfrestur var til 1. mars. Alls bárust 96 umsóknir og var heildarupphæð styrkumsókna um 445 miljónir króna. Að þessu sinni er úthlutað styrkjum til 75 umsækjenda, samtals að upphæð tæpar 279 miljónir króna. Hæstu styrkir eru 25 og 30 milljónir króna. Þeir voru veittir til Vina Þórsmerkur (30 milljónir) og Snæfellsbæjar og Norðurþings (25 milljónir).
Mest lesið Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Sófi fyrir nýsköpun Viðskipti innlent Engin grundvallarbreyting Viðskipti innlent Isavia kærir úrskurðinn Viðskipti innlent Vínbúðir loka og neftóbaksframleiðsla stöðvast fari félagsmenn SFR í verkfall Viðskipti innlent Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Viðskipti innlent Landsbankinn lækkar vexti Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Stýrivextir óbreyttir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Sjá meira