Verulega dregur úr atvinnuleysi og staðan batnar 16. apríl 2013 11:48
Verulega hefur dregið úr atvinnuleysi á fyrsta ársfjórðungi ársins og staðan hefur batnað töluvert á vinnumarkaðinum. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem vitnað er í nýjustu tölur frá Vinnumálastofnun sem settar voru fram fyrir helgina. Skráð atvinnuleysi mældist 5,3% í mars síðastliðnum og minnkar þar með um 0,2 prósentustig frá febrúarmánuði. Þetta er í neðri mörkum þess bils sem Vinnumálastofnun hafði reiknað með að það yrði í mánuðinum (5,3%-5,7%). „Sé tekið mið af fyrsta ársfjórðungi hefur skráð atvinnuleysi mælst að jafnaði 5,4% í ár samanborið við 7,2% á sama tíma í fyrra og 8,6% árið þar á undan. Hefur því verulega dregið úr atvinnuleysi á milli ára, og af þessum tölum er ljóst að staðan á vinnumarkaði hefur batnað töluvert,“ segir í Morgunkorninu. „Þó gætir áhrifa af því að bráðabirgðaákvæði sem gerði atvinnuleitendum kleift að fá greiddar atvinnuleysistryggingar í allt að 4 ár rann út um síðustu áramót, og hefur skráð atvinnuleysi af þeim sökum mælst nokkuð minna á þessu ári. Þessa áhrifa gætir hins vegar ekki í vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands sem sýnir einnig að verulega hefur dregið úr atvinnuleysi á milli ára... Hjöðnun atvinnuleysis á milli ára er í takti við það sem opinberar spár hafa reiknað með og má vænta að framhald verði á þeirri þróun næstu árin, nema eitthvað verulegt bakslag komi í efnahagsbatann.“
Mest lesið Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Hvernig erfist séreignin? Viðskipti innlent Peningaskápurinn ... Viðskipti innlent Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Grindvíkingar fá fyrsta fimm stjörnu hótelið Viðskipti innlent Engin grundvallarbreyting Viðskipti innlent Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Viðskipti innlent Eintak af dýrustu bók heims seldist á 1,3 milljarða Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Sjá meira