Heildaraflinn dróst saman um rúm 6% milli ára í mars 16. apríl 2013 09:05
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum marsmánuði, metinn á föstu verði, var 6,1% minni en í mars í fyrra. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 9,6% miðað við sama tímabil í fyrra, sé hann metinn á föstu verði. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að aflinn nam alls 207.026 tonnum í mars s.l. samanborið við 193.340 tonn í mars í fyrra. Botnfiskafli dróst saman um 988 tonn frá mars 2012 og nam rúmum 45.100 tonnum. Þar af var þorskaflinn rúm 25.800 tonn, sem er aukning um tæp 2.300 tonn frá fyrra ári. Ýsuaflinn nam tæpum 5.000 tonnum sem er rúmum 1.500 tonnum minni afli en í mars 2012. Karfaaflinn dróst saman um rúm 1.800 tonn samanborið við mars 2012 og nam tæpum 6.100 tonnum. Tæp 3.700 tonn veiddust af ufsa sem er 142 tonna aukning frá mars 2012. Afli uppsjávartegunda nam rúmum 158.300 tonnum, sem er um 15.600 tonnum meiri afli en í mars 2012. Aukningu í uppsjávarafla má rekja til rúmlega 15.900 tonna aukningu í loðnuafla en aflinn nam 157.400 tonnum í mars 2013. 35 tonn veiddust af síld samanborið við 824 tonn í mars 2012 og 939 tonn veiddust af kolmunna sem er aukning um 477 tonn frá fyrra ári. Engar aðrar uppsjávartegundir voru veiddar í mánuðinum, líkt og í mars 2012. Flatfiskaflinn var rúm 2.200 tonn í mars 2013 og dróst saman um 79 tonn frá fyrra ári. Skel- og krabbadýraafli nam 746 tonnum samanborið við 1.171 tonna afla í mars 2012.
Mest lesið Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Hvernig erfist séreignin? Viðskipti innlent Peningaskápurinn ... Viðskipti innlent Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Grindvíkingar fá fyrsta fimm stjörnu hótelið Viðskipti innlent Engin grundvallarbreyting Viðskipti innlent Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Viðskipti innlent Eintak af dýrustu bók heims seldist á 1,3 milljarða Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Sjá meira