Opera stóreykur umsvif sín 26. apríl 2013 19:35 Úr Advania Thor gagnaverinu í Hafnarfirði.
Norska hugbúnaðarfyrirtækið Opera Software hefur undirritað nýjan samning við Advania vegna umsvifa fyrirtækisins í gagnaveri Advania í Hafnarfirði. Samningurinn felur í sér liðlega 60% aukningu á umsvifum Opera Software í Advania Thor gagnaverinu, sem þjónar meðal annars 300 milljónum notenda Opera Mini-vafrans í tölvum, snjallsímum, sjónvörpum og öðrum nettengdum tækjum að því er fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækjunum. Í gagnamagni er internetumferð viðskiptavina Opera Software í Advania Thor gagnaverinu áþekk allri annarri internetumferð á Íslandi. Með þessum nýja samningi eykst þessi umferð til mikilla muna. Opera Software var stofnað árið 1994 og var fyrirtækið einn af fyrstu viðskiptavinum Advania Thor gagnaversins þegar það var tekið í notkun árið 2010. Hægt er að lesa tilkynninguna í heild sinni hér fyrir neðan: Norska hugbúnaðarfyrirtækið Opera Software hefur undirritað nýjan samning við Advania vegna umsvifa fyrirtækisins í gagnaveri Advania í Hafnarfirði. Samningurinn felur í sér liðlega 60% aukningu á umsvifum Opera Software í Advania Thor gagnaverinu, sem þjónar meðal annars 300 milljónum notenda Opera Mini-vafrans í tölvum, snjallsímum, sjónvörpum og öðrum nettengdum tækjum. Í gagnamagni er internetumferð viðskiptavina Opera Software í Advania Thor gagnaverinu áþekk allri annarri internetumferð á Íslandi. Með þessum nýja samningi eykst þessi umferð til mikilla muna. Opera Software var stofnað árið 1994 og var fyrirtækið einn af fyrstu viðskiptavinum Advania Thor gagnaversins þegar það var tekið í notkun árið 2010.Íslensk gagnaver í örum vexti "Íslensk gagnaver eru atvinnugrein í örum vexti. Greinin leggur áherslu á að markaðssetja Ísland sem umhverfisvænan valkost sem hefur þá sérstöðu að byggja á endurnýjanlegri orku. Gagnaverin geta skapað þjóðinni miklar gjaldeyristekjur, eins og samningurinn við Opera Software er gott dæmi um. Í dag eru um 60% af tekjum Advania samsteypunnar og um 80% af veltu Advania Thor gagnaversins vegna erlendra verkefna," segir Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania.Gagnkvæmur ávinningur „Við erum hæstánægð með aukna samvinnu við Advanía en fyrirtækin hafa haft gagnkvæman ávinning af samstarfinu til þessa. Samstarfið við Advania Thor gagnaverið á Íslandi gerir okkur kleift að bjóða viðskiptavinum okkar aukna þjónustu á umhverfisvænan hátt. Árið 2010 ákváðum við að nýta okkur starfsemi gagnaversins á Íslandi og sú aukning sem við höfum nú samið um er staðfesting á ánægju okkar með þessi viðskipti,“ segir Anthony Nichols framkvæmdastjóri tæknisviðs Opera Software. Raunhæfur kostur fyrir erlenda viðskiptavini Advania er norrænt 1.100 manna upplýsingatæknifyrirtæki með 20 skrifstofur í 3 löndum: á Íslandi, í Noregi og í Svíþjóð. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Reykjavík. Viðskiptavinir Advania eru um 10 þúsund talsins um víða veröld. Gagnaflutnings- og orkuleiðir til og frá Advania Thor gagnaverinu í Hafnarfirði eru mjög góðar og því er það mjög álitlegur kostur fyrir alþjóðleg fyrirtæki á borð við Opera Software, sem eru að leita að umhverfisvænu gagnaveri með hagkvæma og áreiðanlega þjónustu.2.100 netmiðlarar og orka til 700 heimila Advania hýsir í dag um 1300 netmiðlara fyrir Opera Software og nýi samningurinn felur meðal annars sér hýsingu á tæplega 800 miðlurum til viðbótar. Orkuþörfin vegna umsvifa Opera Software í Advania Thor gagnaverinu svipar til þeirrar orku sem þarf fyrir 700 íslensk heimili eða 2-3 þúsund manna bæjarfélag. Starfsemi gagnaversins hefur aukist mjög að umfangi síðast liðna 18 mánuði. Fjöldi viðskiptavina hefur þrefaldast og húsnæði versins hefur verið tvöfaldað úr 3 þúsund fermetrum í 6 þúsund. Lögð hafa verið drög að enn frekari stækkun gagnaversins á næstu misserum ef reksturinn heldur áfram að aukast.
Mest lesið Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Isavia kærir úrskurðinn Viðskipti innlent Engin grundvallarbreyting Viðskipti innlent Grindvíkingar fá fyrsta fimm stjörnu hótelið Viðskipti innlent Áfrýjar í Imon-málinu Viðskipti innlent Markaðurinn 4. sept. Atvinnulíf Stýrivextir óbreyttir Viðskipti innlent Bókmenntir flottasta útflutningsgreinin Viðskipti innlent Sigurjón Árnason: Dómurinn óskiljanlegur, kolrangur og ekki í samræmi við lög og reglur Viðskipti innlent Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Viðskipti innlent Fleiri fréttir Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Sjá meira
Sigurjón Árnason: Dómurinn óskiljanlegur, kolrangur og ekki í samræmi við lög og reglur Viðskipti innlent
Sigurjón Árnason: Dómurinn óskiljanlegur, kolrangur og ekki í samræmi við lög og reglur Viðskipti innlent