Tvær fjölskyldur fá tæpar 300 milljónir í arðgreiðslur Helga Arnardóttir skrifar 23. apríl 2013 18:36
Tvær fjölskyldur fá greiddar tæpar þrjú hundruð milljónir króna í arðgreiðslur af sautján hundruð milljón króna arði sem greiddur verður til hluthafa HB Granda. Þetta er tæplega fimmtungur af heildararðgreiðslum félagsins. Á síðasta aðalfundi HB Granda sem fór fram síðastliðinn föstudag var samþykkt að greiða arð til hluthafa félagsins upp á tæpar sautján hundruð milljónir króna. Hagnaður félagsins nam 2,4 milljörðum árið 2012 og eru arðgreiðslurnar þær hæstu sem greiddar hafa verið hjá félaginu frá hruni. Félagið Vogun er stærsti hluthafinn í HB Granda með um 40 % eignarhlut. Arion banki er næststærsti hluthafinn í HB Granda með rúm 33 % en sá hlutur var áður í eigu Kjalar hf, félags í eigu Ólafs Ólafssonar. Eignarhald Vogunar er tiltölulega flókið. Vogun er 100 % í eigu Hvals Hf sem samanstendur af tæplega hundrað aðilum. Stærsti eigandi Hvals er Fiskveiðihlutafélagið Venus sem er með 36% eignarhlut. Venus er að mestu í eigu Kristjáns og Birnu Loftsbarna sem eiga 21 % hlut hvort og svo annars vegar Kristínar, Sigríðar og Árna Vilhjálmsbarna sem eiga 12 % hlut hvert. Árni Vilhjálmsson fyrrverandi stjórnarformaður HB Granda lést hins vegar nýlega og fer dánarbú Árna með hans hlut. Félögin Venus og Vogun eiga saman meirihluta í Hampiðjunni sem á svo 9,4 % í HB Granda. Arðgreiðslur HB Granda til þessara tveggja fjölskyldna nema tæpum þrjú hundruð milljónum króna, eða tæpum sautján prósentum af heildararðgreiðslum félagsins. Systkinin Kristján og Birna Loftsbörn fá því tæplega hundrað og fimmtíu milljónir króna í arð eða rúmar 73 milljónir hvort. Systurnar Kristín og Sigríður Vilhjálmsdætur og dánarbú Árna Vilhjálmssonar fá því samtals um hundrað og þrjátíu milljónir greiddar í arð eða tæplega fjörutíu og fjórar milljónir hvert. Í fyrra greiddi HB Grandi tæpar sjö hundruð milljónir í arð til eigenda sinna fyrir rekstarárið 2011. Arðgreiðslur félagsins jukust um einn milljarð milli ára og eru því samtals orðnar rúmir 2,3 milljarðar á tveimur árum.
Mest lesið Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Sófi fyrir nýsköpun Viðskipti innlent Engin grundvallarbreyting Viðskipti innlent Isavia kærir úrskurðinn Viðskipti innlent Vínbúðir loka og neftóbaksframleiðsla stöðvast fari félagsmenn SFR í verkfall Viðskipti innlent Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Viðskipti innlent Landsbankinn lækkar vexti Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Stýrivextir óbreyttir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Sjá meira