Hagnaður Marel minnkar um meira en helming milli ára 23. apríl 2013 07:45
Hagnaður Marel eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi ársins nam 5,7 milljónum evra eða um 870 milljónum króna. Þetta er meir en tvöfalt minni hagnaður en á sama tímabili í fyrra þegar hagnaðurinn nam rúmlega 13 milljónum evra. Í tilkynningu um uppgjörið til Kauphallarinnar segir að mikilvægir sölusamningar voru m.a. gerðir í Brasilíu, Kína, Mið-Austurlöndum og Rússlandi. Markaðsaðstæður í Evrópu eru áfram krefjandi en batamerki sjást í Bandaríkjunum. Því gerir Marel ráð fyrir hóflegum vexti á árinu að því gefnu að aðstæður á helstu mörkuðum batni á seinni hluta ársins. „Ársfjórðungurinn var í samræmi við væntingar okkar. Tekjur voru í lægri kantinum sem endurspeglar tiltölulega lága stöðu pantanabókarinnar í upphafi árs. Umtalsverð aukning á nýjum pöntunum og meira líf á mörkuðum okkar á tímabilinu gefa þó tilefni til bjartsýni,“ segir Theo Hoen, forstjóri Marel í tilkynningunni. „Enn sem fyrr mun Marel leggja ríka áherslu á hagræðingu og kostnaðaraðhald en við erum ekki að minnka umsvifin og erum í góðri stöðu til að auka sölu og markaðshlutdeild á næstunni. Eins og við tilkynntum í lok síðasta fjórðungs þá væntum við þess að ná 10-12% EBIT markmiði okkar á seinni hluta ársins 2013, að því gefnu að aðstæður á helstu mörkuðum okkar haldi áfram að batna.“
Mest lesið Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Isavia kærir úrskurðinn Viðskipti innlent Engin grundvallarbreyting Viðskipti innlent Grindvíkingar fá fyrsta fimm stjörnu hótelið Viðskipti innlent Áfrýjar í Imon-málinu Viðskipti innlent Markaðurinn 4. sept. Atvinnulíf Stýrivextir óbreyttir Viðskipti innlent Bókmenntir flottasta útflutningsgreinin Viðskipti innlent Sigurjón Árnason: Dómurinn óskiljanlegur, kolrangur og ekki í samræmi við lög og reglur Viðskipti innlent Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Viðskipti innlent Fleiri fréttir Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Sjá meira
Sigurjón Árnason: Dómurinn óskiljanlegur, kolrangur og ekki í samræmi við lög og reglur Viðskipti innlent
Sigurjón Árnason: Dómurinn óskiljanlegur, kolrangur og ekki í samræmi við lög og reglur Viðskipti innlent