Frosti ráðinn framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs 29. maí 2013 10:04
Gengið hefur verið frá ráðningu Frosta Ólafssonar í starf framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs. Í tilkynningu segir að Frosti hafi starfað fyrir Kaupmannahafnarskrifstofu alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækisins McKinsey & Company undanfarin tvö ár, þar sem hann hefur einkum sinnt verkefnum í stefnumótun og rekstrarumbótum fyrirtækja. Frosti er hagfræðingur að mennt og með MBA gráðu frá London Business School. Hann mun hefja störf í byrjun júnímánaðar. Frosti segir að verkefnið leggist vel í sig og að þrátt fyrir ýmsar áskoranir í íslensku efnahagslífi séu mikil tækifæri til staðar. ”Íslendingar standa frammi fyrir ýmsum úrlausnarefnum til að hér verði ásættanlegar aðstæður til fjárfestingar og sterkar forsendur til langtímahagvaxtar. Það er þó ljóst að fjölmörg tækifæri eru til staðar til að efla verðmætasköpun og hagsæld í landinu og það er spennandi verkefni fyrir mig, og aðra starfsmenn Viðskiptaráðs, að stuðla að slíkum umbótum á komandi misserum” segir Frosti. ”Viðskiptaráð hefur á undanförnum árum stutt markvisst við lausnamiðaða og málefnalega umræðu um íslensk efnahagsmál og tækifæri til umbóta í rekstarumhverfi fyrirtækja. Samhliða hefur tekist vel að hlúa að hlutverki ráðsins sem bakhjarl menntunar og mun ég leggja mikla áherslu á að svo verði áfram.” Undanfarna mánuði hefur Haraldur I. Birgisson, aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, sinnt daglegum rekstri og verkefnastjórn ráðsins sem starfandi framkvæmdastjóri. Hann mun áfram starfa sem aðstoðarframkvæmdastjóri og lögfræðingur ráðsins.
Mest lesið Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Viðskipti innlent Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Okkar eigin Zuckerberg: Doktorinn sem er með alla risana í viðskiptum Atvinnulíf Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Viðskipti innlent Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Samstarf Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Viðskipti innlent Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Viðskipti innlent Fleiri fréttir Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Sjá meira