Menning

Valin á ráðstefnu fyrir nýja rithöfunda

Kjartan Guðmundsson skrifar
Heiðrún og Kjartan gáfu bæði út frumraun sína í fyrra.
Heiðrún og Kjartan gáfu bæði út frumraun sína í fyrra.

„Þetta er auðvitað mikill heiður og afar ánægjulegt, bara eins og að komast á Norðurlandameistaramótið,“ segir skáldið Heiðrún Ólafsdóttir sem hefur ásamt Kjartani Yngva Björnssyni verið valin til að taka þátt í ráðstefnu fyrir nýja og upprennandi höfunda frá öllum Norðurlöndunum. Námskeiðið fer fram í Biskops-Arnö í Svíþjóð dagana 12. til 16. júní næstkomandi.

Á hið svokallaða „debutanteseminar“ er árlega boðið höfundum frá öllum Norðurlöndunum sem gáfu út sína fyrstu bók á liðnu ári og rithöfundasambönd hvers lands tilnefna þátttakendur frá sínu landi. Fyrsta bók Kjartans Yngva var Hrafnsauga, sem hlaut Íslensku Barnabókaverðlaunin árið 2012, en hana skrifaði hann í samvinnu við Snæbjörn Brynjarsson. Þeir Kjartan og Snæbjörn sitja nú við skriftir í Transilvaníu þar sem þeir leggja lokahönd á framhald bókarinnar. Fyrsta bók Heiðrúnar var ljóðabókin Á milli okkar allt sem kom út síðasta haust en Heiðrún hlaut nýræktarstyrk frá Bókmenntasjóði fyrir handritið.

Á námskeiðinu munu höfundarnir vinna í nýskrifuðum textum sínum á námskeiðinu undir handleiðslu reyndra höfunda, sem að þessu sinni eru þeir Jörn H. Sværen frá Noregi og Jeppe Brixvold frá Danmörku, auk þess sem þeir kynna verk sín og lesa upp. Þema námskeiðsins er að þessu sinni efni eða „material“ og verður unnið með það á ýmsan hátt. "Þetta er gamalt skandinavískt vinarbragð, að leiða saman nýja rithöfunda, og ég hef heyrt mjög vel látið af þessum ráðstefnum,“ segir Heiðrún. Hún er komin vel á veg með aðra ljóðabók sína sem kemur til með að nefnast Frá hjaranum og verður líklega gefin út í haust.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.