Stöðva þarf áform um einokum í akstri til og frá Leifsstöð 14. júní 2013 11:46
Samkeppniseftirlitið segir að stöðva þurfi áform um einokun í áætlunarakstri milli Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og Reykjavíkur. Af þessum ástæðum hefur eftirlitið beint þeim tilmælum til innanríkisráðherra og Vegagerðarinnar að leita þegar í stað allra leiða til að stöðva áform Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum um að koma á einokun á leiðinni. Í tilkynningu segir að í dag hafi Samkeppniseftirlitið beint áliti til innanríkisráðherra og Vegagerðarinnar um alvarlegar samkeppnishindranir sem felast í einkaleyfi sem Vegagerðin hefur veitt Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) til þess að sinna áætlunarakstri á svæðinu, þar á meðal á milli Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar (FLE) og Reykjavíkur. Áður hafði Samkeppniseftirlitið komist að þeirri niðurstöðu að það hefði ekki lagalegar forsendur til þess að stöðva með bindandi hætti samninga SSS, sem ætlað er að koma á einokun á áætlunarleiðinni. Álit þetta kemur í framhaldi af kvörtunum Kynnisferða, Samtaka atvinnulífsins og Samtaka ferðaþjónustunnar. Af þessum sökum beinir Samkeppniseftirlitið þeim tilmælum til innanríkisráðherra að hann taki nú þegar til endurskoðunar fyrrgreindar breytingar á lögum nr. 73/2001. Við þá endurskoðun verður að finna leiðir til þess að sveitarfélög skipuleggi og samræmi almenningssamgöngur innan og á milli byggðarlaga, án þess að hindra samkeppni og um leið skaða hagsmuni almennings og ferðaþjónustunnar. Í því sambandi er mikilvægt að skilgreina almenningssamgöngur gagnvart ferðaþjónustu og koma í veg fyrir að samtök sveitarfélaga geti komið á einokun á áætlunarleiðum milli byggðarlaga sem skila hagnaði. Við þá endurskoðun verður að gæta að skuldbindingum Íslands samkvæmt EES-samningnum.Allra leiða leitað Samkeppniseftirlitið beinir því einnig til innanríkisráðherra og Vegagerðarinnar að leita þegar í stað allra leiða til þess að stöðva áform SSS um að koma á einokun á áætlunarleiðinni milli FLE og Reykjavíkur, sem grundvallast umræddum lögum og samningi Vegagerðarinnar og SSS um einkaleyfi á leiðinni. Telji þau sig ekki hafa heimild til slíkrar íhlutunar er mælst til þess að leitað verði atbeina löggjafans þegar í stað. Þá hefur Samkeppniseftirlitið beint því til SSS að stöðva þegar í stað fyrrgreind áform sín um einokun á áætlunarleiðinni milli FLE og Reykjavíkur.
Mest lesið Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Viðskipti innlent Okkar eiginn Zuckerberg: Doktorinn sem er með alla risana í viðskiptum Atvinnulíf Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Viðskipti innlent Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Samstarf Airbnb aukið ójöfnuð Viðskipti innlent Eldaðu maður Viðskipti innlent Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Eintak af dýrustu bók heims seldist á 1,3 milljarða Viðskipti erlent Bankahólfið: Engin þota Viðskipti innlent Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Sjá meira