Ferðagleði Íslendinga eykst að nýju 10. júní 2013 11:00
Svo virðist sem ferðagleði landans hafi aukist að nýju í maí sl., en samkvæmt nýlega birtum tölum Ferðamálastofu Íslands héldu mun fleiri Íslendingar erlendis í mánuðinum en á sama tíma í fyrra. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þannig námu brottfarir Íslendinga úr landi um Leifsstöð 34.400 nú í maí, en þær voru 31.500 talsins á sama tíma í fyrra. Nemur fjölgunin á milli ára 9,5%, og hafa brottfarir Íslendinga ekki verið fleiri í maímánuði síðan fyrir hrun. Virðist sú þróun sem var fyrstu mánuði ársins hafa snúist við, en þessi aukning milli ára kemur í kjölfarið á 2,6% samdrætti í apríl sl. og sé tekið mið af fyrsta ársfjórðungi var fjöldinn svo til óbreyttur á milli ára. Sé tekið mið af fyrstu fimm mánuðum ársins nema brottfarir Íslendinga 134.000 samanborið við 131.500 á sama tímabili í fyrra. Jafngildir þetta fjölgun upp á 1,9% milli ára. „Þessi viðsnúningur er í takti við það sem við reiknuðum með, enda hefur þróunin á gengi krónunnar verið hagstæð undanfarna mánuði, eða allt frá því lok janúar sl. Líklega hefur þeirra áhrifa byrjað að gæta í ársfjórðungslegri mælingu Capacent Gallup sem birt var í lok mars sl. á því hversu líklegir Íslendingar eru til þess að ferðast til útlanda á næstu 12 mánuðum. Benti hún til þess að ferðagleði landans hefði aukist að nýju og að landsmenn væru mun líklegri að láta undan útþrá sinni næsta árið en þeir hafa að jafnaði gert frá hruni,“ segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Viðskipti innlent Okkar eiginn Zuckerberg: Doktorinn sem er með alla risana í viðskiptum Atvinnulíf Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Viðskipti innlent Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Samstarf Airbnb aukið ójöfnuð Viðskipti innlent Eldaðu maður Viðskipti innlent Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Eintak af dýrustu bók heims seldist á 1,3 milljarða Viðskipti erlent Bankahólfið: Engin þota Viðskipti innlent Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Sjá meira