Kjaradeilu starfsmanna við hvalaskoðun vísað til ríkissáttasemjara 10. júní 2013 08:11
Að höfðu samráði við lögfræðing Framsýnar hefur félagið ákveðið að vísa kjaradeilu félagsins við Samtök atvinnulífsins vegna starfsmanna við hvalaskoðun á Húsavík til ríkissáttasemjara þar sem viðræður hafa ekki skilað tilætluðum árangri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Framsýn. Þar segir að í dag stunda þrjú fyrirtæki á Húsavík hvalaskoðun en voru tvö á árinu 2012. Á síðasta ári átti félagið í viðræðum við fyrirtækin tvö um kjarasamning fyrir starfsmenn. Eftir samræður á þeim tíma vísuðu fyrirtækin samningsumboðinu til Samtaka atvinnulífsins. Síðan þá hefur Framsýn átt í viðræðum við SA. Því miður hafa viðræðurnar ekki skilað árangri, ekki síst þar sem Samtök atvinnulífsins, hafa dregið umræðuna og ekki verið tilbúin að klára málið þrátt fyrir margítrekaðar óskir Framsýnar þess efnis. Málið er að störf fólks við hvalaskoðun tekur til mismunandi kjarasamninga. Svo sem til kjarasamninga sjómanna og starfsfólks í ferðaþjónustu. Reyndar má færa fyrir því rök að störf starfsmanna við hvalaskoðun nái einnig til kjarasamninga verslunar- og skrifstofufólks og starfsmanna sem starfa eftir almenna kjarasamningnum sem er milli Framsýnar og Samtaka atvinnulífsins. Þess vegna ekki síst er mikilvægt að viðsemjendur komi sér saman um eftir hvaða kjarasamningi/samningum eigi að fara varðandi starfsmenn við hvalaskoðun á Húsavík. Starfsmenn fyrirtækjanna á Húsavík hafa lagt að félaginu að ganga frá samningi fyrir þeirra hönd þar sem núverandi ástand samningamála sé ólíðandi með öllu. Þeir hafa lagt að félaginu að grípa til aðgerða til að knýja fram samninga.
Mest lesið Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Viðskipti innlent Okkar eiginn Zuckerberg: Doktorinn sem er með alla risana í viðskiptum Atvinnulíf Airbnb aukið ójöfnuð Viðskipti innlent Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Viðskipti innlent Eldaðu maður Viðskipti innlent Eintak af dýrustu bók heims seldist á 1,3 milljarða Viðskipti erlent Bankahólfið: Engin þota Viðskipti innlent Áfrýjar í Imon-málinu Viðskipti innlent Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Grettisgata drottnari heimagistingarinnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Sjá meira