Menning

Sjón á síðum stórblaða í Bandaríkjunum

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Sjón
Sjón Fréttablaðið/Stefán
Sigurjón Birgir Sigurðsson, betur þekktur sem Sjón hefur vakið mikla athygli fyrir verk sín í Bandaríkjunum undanfarið. Nú síðast birtist ítarleg umfjöllun um höfundinn íslenska á vefsíðu The New York Review of Books.

Umfjöllunin um Sjón er skrifuð af A.S. Byatt, sem er breskur rithöfundur og verðlaunahafi. Hún hefur meðal annars hlotið hin virtu Booker Prize verðlaun. Auk þess nefndi blaðið The Times Byatt sem eina af fimmtíu bestu, bresku höfundunum frá árinu 1945.

Byatt fer fögrum orðum um Sjón, sem hún segir hafa breytt skynjun sinni á bókmenntum. Hún fer ítarlega yfir þrjár bækur Sjón sem hafa verið þýddar á ensku, bækurnar Skugga-Baldur, Rökkurbýsnir og Argóarflísin.

The New York Review of Books er tímarit sem er gefið út á tveggja mánaða fresti, og beinir sjónum sínum að menningartengdu efni. Tímaritið Esquire kallar blaðið besta bókmennta-blað á enskri tungu og Tom Wolfe, mikils metinn rithöfundur vestanhafs og höfundur verka á borð við The Bonfire of the Vanities, hefur farið fögrum orðum um útgáfuna.

Bókaforlagið Farrar, Straus and Giroux gefa út Sjón í Bandaríkjunum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.