Hagsmunasamtök heimilanna: Ágætar tillögur, eins langt og þær ná 3. desember 2013 08:46 Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Sigmundiur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra.
Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna telur að að aðgerðaáætlun um höfuðstólslækkun húsnæðislána feli í sér ágætar tillögur „eins langt og þær ná, en að þær séu samt sem áður allt of léttvægar miðað við ástandið eins og það er orðið í dag.“ Í tilkynningu frá stjórninni segir að rétt sé að hafa í huga að tillögurnar eigi eftir að hljóta þinglega meðferð og samþykki, þar sem þær geti tekið talsverðum breytingum eða jafnvel verið synjað. „Forskriftin að aðgerðaráætluninni var lögð fram með þingsályktunartillögu forsætisráðherra á sumarþinginu og skiluðu HH inn ítarlegri umsögn um hana. Hefði aðgerðaráætlunin litið dagsins ljós strax árið 2009 hefðu HH efalaust fagnað henni ákaft enda er hún mjög í samræmi við kröfur samtakanna á þeim tíma.“ Að mati samtakanna eru forsendurnar nú, þegar fimm ár eru liðin frá hruni hins vegar talsvert breyttar. „Og finnst okkur í HH tími til kominn að stjórnvöld horfist í augu við vandann í stað þess að setja sífellt fleiri plástra með fallegum myndum á svöðusárin.“ Þá segir ennfremur, að gangi boðuð aðgerðaáætlun eftir, muni það vissulega gagnast einhverjum hluta heimila landsins. „Þrýstingur á ríkisstjórnina um að setja fram einhverja áætlun var vissulega mikill í ljósi þeirra loforða sem gefin voru í kosningabaráttunni síðasta vor. Það er hins vegar ekki nóg að gera “bara eitthvað”,“ eins og segir í tilkynningunni. Að lokum er bent á að talsverð óvissa sé uppi um lögmæti útfærslu verðtryggingar á neytendalánum og fyrir dómstólum eru nokkur mál vegna þessa. „Meðal annars er mál að tilstuðlan HH og félagsmanna í samtökunum þar sem byggt er á því að útfærsla og framkvæmd verðtryggingar á neytendalánum hafi verið ólögmæt allt frá árinu 2001. Þetta þykir sumum kannski fjarstæðukennt en í því samhengi má minna á að samtökin höfðu rétt fyrir sér um ólögmæti gengistryggðra lána.“ Aðgerðir til skuldalækkana áður en útkljáð hefur verið fyrir dómstólum hvort að verðtrygging hafi verið löglega framkvæmd geta reynst samfélaginu öllu mjög dýrkeyptar. Mikilvægt er að uppgjöri þrotabúa föllnu bankanna og afléttingu gjaldeyrishafta verði ekki lokið fyrr en álitamál um lögmæti samninga í lánasöfnum nýrra fjármálafyrirtækja í eigu þeirra, hafa verið útkljáð“. Hagsmunasamtökin segja að áður en það hafi verið gert sé jafnframt varhugavert að leggja áhættu af því á herðar ríkissjóðs. Þá vilja samtökin gagnrýna að ekki séu í aðgerðaáætlunni nein úrræði til að verja heimilin gegn óréttmætum nauðungarsölum án undangenginna dómsúrskurða, í það minnsta þar til boðaðar skuldaleiðréttingar komi til framkvæmda, sem getur verið eftir allt að 6 mánuði samkvæmt áætluninni. „Ekki síst í ljósi þess að miðað við fram komnar tillögur um skuldaleiðréttingu er ljóst að þær kröfur sem hafðar eru í frammi við slíkar fullnustugerðir eru oftar en ekki á órökréttum grunni reistar. Leiða má líkur að því að í mjög mörgum tilvikum hefði heimilismissir verið óþarfur fyrir þær fjölskyldur sem í hlut eiga fyrir utan það tilfinningalega og sálræna álag sem það veldur fjölskyldum að þurfa að eiga á hættu að missa heimili sín, á meðan beðið er boðaðra aðgerða.“ Í þessu sambandi minna samtökin á að haft var eftir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra á RÚV hinn 11. nóvember að hún mundi skoða að stöðva nauðungarsölur á heimilum fólks og það yrði að fara saman við þær tillögur sem lúta að skuldamálum sem lagðar yrðu fram í lok nóvember. „Nú bólar hinsvegar ekkert á efndum heldur er í raun gefið í og áfram veitt veiðileyfi á heimilin næstu 6 mánuði á meðan unnið verði að nánari útfærslu aðgerðaráætlunarinnar“
Skuldaleiðrétting ríkisstjórnarinnar Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira