Gengi Haga féll skarpt eftir uppgjör 19. janúar 2013 06:00 Hagar Félagið er risi á íslenskum matvörumarkaði. Alls seldi það vörur fyrir 52,3 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum yfirstandandi rekstrarárs síns. fréttablaðið/anton
Hagar högnuðust um 509 milljónir króna á síðasta ársfjórðungi rekstrarárs. Afkoman var samt sem áður langt undir afkomuspám IFS og Íslandsbanka. Rauður dagur í Kauphöllinni í gær eftir miklar hækkanir. Hagnaður Haga var langt undir spám. Gengi hlutabréfa í Högum lækkaði um tæp þrjú prósent í gær en félagið birti þá níu mánaða uppgjör sitt. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi var töluvert lægri en árið á undan og afkoman var undir nýbirtri afkomuspá. Hagar birtu níu mánaða uppgjör fyrir tímabilið 1. mars til 30. nóvember 2012 í gær, en rekstrarári Haga lýkur í lok febrúar á hverju ári. Þar kom fram að hagnaður tímabilsins var rúmir tveir milljarðar króna á tímabilinu. Þrátt fyrir að félagið hafi hagnast á þriðja ársfjórðungi ársins 2012 um 509 milljónir króna var það töluvert minni hagnaður en Hagar sýndu á sama fjórðungi árið 2011. Þá hagnaðist félagið um 842 milljónir króna. EBITDA-hagnaður (hagnaður fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta) jókst hins vegar á milli ára um 19 milljónir króna. Hann var 914 milljónir króna nú en 895 milljónir króna á sama fjórðungi árið 2011. Í afkomuspá sem IFS Greining birti um Haga í síðustu viku var gert ráð fyrir því að EBITDA-hagnaðurinn yrði 1.199 milljónir króna og að hagnaður þess yrði 703 milljónir króna. Alls munar 27,6 prósentum á hagnaði Haga og því sem IFS spáði að félagið myndi hagnast um á tímabilinu 1. september til loka desember. Í afkomuspá Greiningar Íslandsbanka, sem kynnt var fyrir fjárfestum á fimmtudag í síðustu viku, var því spáð að EBITDA-hagnaður yrði 1.346 milljónir króna og lokahagnaður 826 milljónir króna. Alls munaði 38,3 prósentum á hagnaðarspá Íslandsbanka og uppgjöri Haga. Því er afkoma Haga á þriðja ársfjórðungi umtalsvert undir spám greiningaraðilanna. Í tilkynningu frá Högum vegna uppgjörsins kemur þó fram að rekstur félagsins yfir allt níu mánaða tímabilið hafi verið góður og betri en á sama tímabili fyrir árið á undan. Reksturinn er auk þess sagður vera yfir áætlunum á tímabilinu. Hagar eru stærsta smásölufyrirtæki á Íslandi og með mesta markaðshlutdeild allra á matvörumarkaði. Félagið rekur alls 62 verslanir og 95 prósent af tekjum þess koma frá matvörueiningunum Bónus og Hagkaup. Alls seldu Hagar vörur fyrir 16,7 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi yfirstandandi rekstrarárs. Á fyrstu níu mánuðum þess seldi félagið vörur fyrir 52,3 milljarða króna.
Mest lesið Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Grettisgata drottnari heimagistingarinnar Viðskipti innlent Fjárfestar leigja Raufarhólshelli og rukka inn Viðskipti innlent Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Loksins Bar og Mathús í Leifsstöð Viðskipti innlent Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Samstarf Sigurjón áfrýjar dómnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Sjá meira