Menning

Selja íslenskan raunveruleikaþátt úr landi

Þátttakendur í þættinum Hannað fyrir Ísland sem sýndur var á stöð 2 fyrir einu ári.
Þátttakendur í þættinum Hannað fyrir Ísland sem sýndur var á stöð 2 fyrir einu ári.
"Þetta er í fyrsta sinn sem við seljum íslenskt format að skemmtiefni á borð við þetta úr landi,"segir Kjartan Þór Þórðarson, framkvæmdastjóri Sagafilm, sem gekk nýlega frá sölu á raunveruleikaþáttunum Hannað fyrir Ísland til meðal annars Bretlands, Írlands og Norðurlandanna.

Formatið, eða uppskriftin, sem Sagafilm selur er að fyrirmynd þáttana Hannað fyrir Ísland sem voru sýndir á Stöð 2 í byrjun árs 2012. Það er því ekki verið að selja sjálfa þættina heldur bara konseptið, Hannað fyrir..., sem Sagafilm á heiðurinn af ásamt fyrirtækið 66°Norður. "Þetta er í raun eins og þegar við kaupum raunveruleikaþættina Masterchef og X-Factor að utan. Þá þurfum við að fylgja öllum reglum um uppsetningu þáttanna. Nú sitjum við hinum megin við borðið og búum til reglurnar í kringum útfærslur á þáttunum," segir Kjartan en Sagafilm verður meðframleiðandi í bresku, írsku og sænsku útgáfunum. "Þar þjónum við stærra hlutverki en vanalega. Ég get samt ekkert sagt til um hvenær þættirnir fara í framleiðslu úti en það getur tekið nokkur ár."

Sagafilm kynnti þættina fyrst fyrir helstu framleiðslufyrirtækjum á Norðurlöndunum á ráðstefnu í ágúst og í Frakklandi í október þar sem þeim var vel tekið. Kjartan segir uppskrift þáttanna heilla framleiðslufyrirtæki því þetta sé hönnunarþáttur fyrir venjulegt fólk. "Við höfum líka bent á að áhorfið hér heima var nokkuð jafnt milli kynjanna sem er óvanalegt fyrir svona lífsstílsþátt."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.