Menning

Taka þátt í grínsýningu

Helga Braga hefur gengið til liðs við Kaffibrúsakarlana. Mynd/Ólafur Þórisson
Helga Braga hefur gengið til liðs við Kaffibrúsakarlana. Mynd/Ólafur Þórisson
Kaffibrúsakarlarnir, sem snúa aftur með sýningu í Austurbæ á næstunni, hafa fengið til liðs við sig tvo þekkta skemmtikrafta, þau Helgu Brögu Jónsdóttur og Lalla töframann.

Helga Braga kemur fram með gamanmál, dans og söng og mun hún vafalítið passa við Kaffibrúsakarlana eins og flís við rass. Lalli töframaður hefur verið brautryðjandi í seinni bylgju töframanna á Íslandi. Hann hefur gefið út þrjá mynddiska með töfrabrögðum og hefur verið duglegur við að töfra úti um allt land.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.