Þorskstofninn mælist enn og aftur sterkur Svavar Hávarðsson skrifar 6. apríl 2013 12:00 Þorskkvótinn gæti verið um 220 þúsund tonn innan fárra ára. fréttablaðið/stefán
Niðurstöður úr vorralli Hafrannsóknarstofnunar gefa vonir um að þorskkvótinn verði aukinn á næsta fiskveiðiári, samkvæmt mati LÍÚ. Stofnvísitala þorsks á Íslandsmiðum er með því hæsta sem mælst hefur undanfarin 28 ár. Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum (vorrall) fór fram dagana 26. febrúar til 17. mars. Fimm skip tóku þátt í verkefninu.Fyrsta mat á 2012 árgangi þorsks bendir til að hann sé undir langtímameðaltali árganga frá 1955. Hann kemur í kjölfar meðalstórra árganga frá 2008, 2009 og 2011, en árgangurinn frá 2010 er slakur. Á heimasíðu Hafrannsóknarstofnunarinnar kemur fram að meðalþyngd þorsksins eftir aldri hafi hækkað undanfarin ár og sé nú yfir meðaltali hjá flestum aldurshópum. Mælingar á ýsu eru svipaðar og undanfarin ár. Stofnvísitala ýsu hækkaði verulega á árunum 2002-2006 en fór ört lækkandi næstu fjögur árin þar á eftir. Mælingin nú er svipuð því sem verið hefur í vorralli frá 2010. Lengdardreifing og aldursgreiningar benda til að allir ýsuárgangar frá og með 2008 séu lélegir. Þá eru horfurnar jákvæðar með stofna eins og gullkarfa, ufsa og fleiri tegundir. Lokamat og tillögur Hafrannsóknastofnunarinnar um aflamark fyrir næsta fiskveiðiár verða kynntar í byrjun júní.
Mest lesið Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Hvernig erfist séreignin? Viðskipti innlent Peningaskápurinn ... Viðskipti innlent Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Grindvíkingar fá fyrsta fimm stjörnu hótelið Viðskipti innlent Engin grundvallarbreyting Viðskipti innlent Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Viðskipti innlent Eintak af dýrustu bók heims seldist á 1,3 milljarða Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Sjá meira