Menning

Dóttirin Franziska Una í einu hlutverkanna

Álfrún Pálsdóttir skrifar
Dagur Kári og Franziska Una. Mynd/Stefán
Dagur Kári og Franziska Una. Mynd/Stefán
„Þetta hefur gengið mjög vel og við stefnum á að klára í vikunni," segir leikstjórinn Dagur Kári Pétursson, sem þessa dagana er að ljúka tökum á nýrri mynd hér á landi.

Myndin ber vinnuheitið Fleygur en það er Baltasar Kormákur sem framleiðir myndina. Með aðalhlutverk fer Gunnar Jónsson, ásamt þeim Sigurjóni Kjartanssyni, Ilmi Kristjánsdóttur, Arnari Jónssyni og Margréti Helgu Jóhannsdóttur.

Þegar Fréttablaðið náði tali af Degi Kára var hann í langþráðu og dagslöngu fríi frá tökum en þær fara fram víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu þessa dagana. Dagur Kári skrifaði sjálfur handritið að myndinni.

„Þetta er svona karakterstúdía. Gunnar leikur Fúsa, fertugan mann sem býr enn þá hjá móður sinni og heldur fast í tengslin við bernskuna. Röð atburða gerir það svo að verkum að hann þarf að stíga út fyrir þægindarammann."

Í einu hlutverkanna er dóttir Dags Kára, Franziska Una Dagsdóttir, sem er átta ára gömul og að stíga sín fyrstu skref á hvíta tjaldinu. Dagur segir hana hafa staðið sig með prýði í tökunum.

„Ég hafði hana í huga í hlutverkið þegar ég skrifaði handritið en hún sótti samt um það eins og aðrir og bar af í prufunum. Það var mjög kósí að hafa hana á tökustað enda er maður oft mikið fjarverandi frá fjölskyldunni þegar maður er í tökum. Hún á framtíðina fyrir sér í þessu eins og mörgu."

Áætluð frumsýning á myndinni er í lok þess árs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.