Leysa þarf snjóhengjuvanda Magnús Þorlákur Lúðvíksson skrifar 18. apríl 2013 00:01 Hafsteinn Hauksson
Er raunhæft að losa gjaldeyrishöftin innan tiltölulega skamms tíma eða er haftalaust samfélag hér á landi einungis fjarlægur draumur? Greiningardeild Arion banka gerði tilraun til þess að svara þessari spurningu á fundi í höfuðstöðvum bankans í gær en í stuttu máli var svarið eins og oft við flóknum spurningum: það veltur á ýmsu. Á fundinum flutti Hafsteinn Hauksson, hagfræðingur í greiningardeildinni, erindi þar sem hann velti upp fyrrgreindri spurningu. Undir lok erindis síns sagði Hafsteinn: „Það er hægt að teikna upp aðstæður þar sem afnámið getur gerst hratt en það er líka hægt að teikna upp aðstæður þar sem afnámið getur tafist um ókomna tíð.“ Það hvorar aðstæðurnar raungerast sagði Hafsteinn fara að ýmsu leyti eftir ytri þáttum sem Íslendingar hafi ekki stjórn á. Þar skipti mestu til dæmis vaxtaumhverfið og viðskiptakjör landsins. Hann sagði Íslendinga hins vegar hafa stjórn á öðrum þáttum sem skipti afnámsferlið miklu máli en efst á þeim lista væru uppgjör gömlu bankanna. „Það er lykilatriði að búin verði gerð upp þannig að óþolinmóðum erlendum krónueigendum verði fækkað eins og kostur er. Og það er mjög erfitt að sjá fyrir sér að það sé hægt að neinu marki nema þeir taki á sig einhvern afslátt af kröfum sínum,“ sagði Hafsteinn og bætti við að auk þess væri mikilvægt að endursemja um skuldir Landsbankans og mögulega Orkuveitu Reykjavíkur með það fyrir augum að lengja í greiðsluferlum svo þrýstingur vegna afborgana á gengi krónunnar minnkaði. Hafsteinn lagði einnig áherslu á að unnið yrði að þessum verkefnum með þannig hætti að tiltrú fjárfesta á íslensku stofnanaumhverfi og efnahagslífi yrði ekki fyrir skaða. Áhættan við afnám hafta væri sú að fjárfestar myndu missa trú á hagkerfinu sem myndi valda gengisfalli, verðbólguskoti, vaxtahækkunum og samdrætti með slæmum afleiðingum fyrir heimili, fyrirtæki og ríkissjóð.fréttablaðið/vilhelm
Mest lesið Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Landsbankinn lækkar vexti Viðskipti innlent Vínbúðir loka og neftóbaksframleiðsla stöðvast fari félagsmenn SFR í verkfall Viðskipti innlent Sófi fyrir nýsköpun Viðskipti innlent Engin grundvallarbreyting Viðskipti innlent Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Viðskipti innlent Isavia kærir úrskurðinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Sjá meira