Varar sterklega við upptöku á eignum þrotabúa bankanna Magnús Þorlákur Lúðvíksson skrifar 19. apríl 2013 07:00 Lars Christensen hefur verið tíður gestur á Íslandi síðustu ár en greiningardeild Danske Bank hefur gefið út þrjár skýrslur um íslenska hagkerfið á síðustu árum.Fréttablaðið/GVA
Danski Hagfræðingurinn Lars Christensen segir að erlendir fjárfestar yrðu lítt hrifnir ef hugmyndir um upptöku ríkisins á hluta eigna þrotabúa bankanna raungerðust. Gæti seinkað afnámi hafta og eyðilagt fyrir fjárfestingu. Christensen varar sterklega við því að stjórnvöld beiti löggjafarvaldinu til að komast yfir eignir þrotabúa bankanna. Segir hann að slík aðgerð myndi festa gjaldeyrishöftin í sessi til lengri tíma, auk þess sem tiltrú erlendra fjárfesta á íslensku hagkerfi myndi tapast. „Ég hef verið að fylgjast með kosningabaráttunni og ef ég set mig í spor erlends fjárfestis hefði ég miklar áhyggjur af umræðunni um gjaldeyrishöftin og sérstaklega tillögu sem kynnt hefur verið um í raun upptöku ríkisins á eignum þrotabúa gömlu bankanna,“ segir Christensen, sem starfar sem forstöðumaður greiningardeildar Danske Bank. Christensen segir að slík aðgerð myndi þýða að ekki væri mögulegt að afnema gjaldeyrishöftin í náinni framtíð. „Það eitt og sér myndi valda því að ímynd Íslands hjá erlendum fjárfestum myndi bera skaða af því fjárfestum var sagt að höftunum yrði hægt og rólega aflétt,“ segir Christensen og heldur áfram: „En svo leggja sumir flokkar til að ríkið taki upp eignir þrotabúanna. Mér finnst líklegt að viðbrögð alþjóðlegra fjárfesta við því yrðu mjög neikvæð og sömuleiðis viðbrögð alþjóðlegra stofnana.“ Christensen leggur áherslu á að hann telji það ekki sitt hlutverk að gefa íslenskum stjórnmálamönnum ráð eða að skipta sér af stjórnmálaumræðunni hér á landi. En sé hann spurður að því hvers konar áhrif þessar hugmyndir séu líklegar til að hafa á fjárfestingu hér á landi þá hafi hann skoðun á því sem hagfræðingur. Þá ítrekar hann að þau áhrif séu líkleg til að vera verulega neikvæð. „Það er vitaskuld vandi á Íslandi að skuldir heimilanna eru mjög háar og stjórnmálamenn þurfa að bregðast við því. Þeir hafa að vísu gert ýmislegt en það þarf meira til. Ég sýni því fullan skilning. En að reyna að leysa þann vanda með upptöku á eignum erlendra fjárfesta er slæm leið,“ segir Christensen og bætir við að ekki sé verið að ræða um gjaldþrot eða endurskipulagningu á skuldum heldur beinlínis eignaupptöku. Þá segir Christensen að í umræðunni hér á landi sé rætt um eigendur þessara fjármuna eins og þeir séu á einhvern hátt óvinveittir. „Þetta eru ekki bara vogunarsjóðir heldur einnig til dæmis norrænir lífeyrissjóðir. Þá stöndum við frammi fyrir því að kannski sparnaður dansks lífeyrisþega var notaður til að kaupa íslensk ríkisskuldabréf sem svo voru fest innan hafta. Og nú á að taka þessa eign af honum. Ég get ekki ímyndað mér að Íslendingum finnist það sanngjarnt,“ segir Christensen. Loks segist Christensen ekki vera viss um hvernig standi til að framkvæma þessar hugmyndir. Hann efist hins vegar um lögmæti þess að taka upp eignir þrotabúanna í þeim mæli sem rætt hafi verið um.
Mest lesið Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Sófi fyrir nýsköpun Viðskipti innlent Engin grundvallarbreyting Viðskipti innlent Isavia kærir úrskurðinn Viðskipti innlent Vínbúðir loka og neftóbaksframleiðsla stöðvast fari félagsmenn SFR í verkfall Viðskipti innlent Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Viðskipti innlent Landsbankinn lækkar vexti Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Stýrivextir óbreyttir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Sjá meira