Menning

Hrollvekjur og heimildarmyndir

Hryllingsmyndin Mama er á meðal þeirra kvikmynda sem frumsýndar verða um helgina. Myndin skartar Nikolaj Coster-Waldau og Jessicu Chastain í aðalhlutverkum.
Hryllingsmyndin Mama er á meðal þeirra kvikmynda sem frumsýndar verða um helgina. Myndin skartar Nikolaj Coster-Waldau og Jessicu Chastain í aðalhlutverkum.
Hrollvekjan Mama í leikstjórn Andrés Muschietti er á meðal þeirra kvikmynda sem verða frumsýndar um helgina. Myndin segir frá systrunum Victoriu og Lilly, sem hverfa daginn sem faðir þeirra myrti móður þeirra. Föðurbróðir stúlknanna og sambýliskona hans, sem leikin eru af Nikolaj Coster-Waldau og Jessicu Chastain, leita að stúlkunum í fimm ár þar til þær finnast dag einn í niðurníddum kofa. Stúlkurnar eru mannfælnar og dýrslegar í hegðun í fyrstu en Lucas og Annabel eru staðráðin í að taka þær í fóstur. Fljótlega fara þó dularfullir og hræðilegir atburðir að gerast.

Nýjasta kvikmynd leikstjórans Harmony Korine, Spring Breakers, verður frumsýnd í Laugarásbíói á mánudag. Korine gerði garðinn frægan árið 1995 með handriti sínu að kvikmyndinni Kids. Spring Breakers skartar Selenu Gomez, Vanessu Hudgens, Ashley Benson og James Franco í aðalhlutverkum og segir frá vinkonum sem lenda í vandræðum eftir kynni sín við eiturlyfjasala að nafni Alien.

Heimildarmyndirnar How to Survive a Plague og Mission to Lars verða frumsýndar í Bíói Paradís. Fyrrnefnda myndin var tilnefnd til Óskarsverðlauna og fjallar um baráttu bandarískra grasrótarsamtaka við heilbrigðiskerfið og lyfjaiðnaðinn þegar alnæmisfaraldurinn geisaði meðal samkynhneigðra á níunda áratugnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.