Menning

Mín gæfa að lenda í námi hjá Snæbjörgu

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari og Ingibjörg Guðjónsdóttir söngkona flytja í kvöld lög sem Ingibjörg söng í söngnáminu hjá Snæbjörgu Snæbjarnardóttur í Tónlistarskóla Garðabæjar.
Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari og Ingibjörg Guðjónsdóttir söngkona flytja í kvöld lög sem Ingibjörg söng í söngnáminu hjá Snæbjörgu Snæbjarnardóttur í Tónlistarskóla Garðabæjar. Fréttablaðið/Daníel.

„Þetta kom skemmtilega á óvart,“ segir Ingibjörg Guðjónsdóttir, söngkona, kórstjóri og söngkennari, sem á föstudag var útnefnd bæjarlistamaður Garðabæjar 2013. „Ástæðan er væntanlega fyrst og fremst starf mitt með Kvennakór Garðabæjar sem ég stofnaði árið 2000. Starf hans hefur verið mjög sýnilegt í bænum, en við höfum verið með samstarfssamning við bæinn og sinnt ýmsum verkefnum til að efla hér menningu og listir.“

Ingibjörg hefur lagt meira af mörkum til eflingar tónlistarlífs í Garðabæ og fór um áramótin af stað með tónleikaröðina Þriðjudagsklassík í Garðabæ. Lokatónleikar raðarinnar í vor eru einmitt í kvöld og þar syngur Ingibjörg sjálf við undirleik Ástríðar Öldu Sigurðardóttur píanóleikara. Tónleikarnir bera yfirskriftina Arfleifð Snæju og er efnisskráin tileinkuð námsárum Ingibjargar í Tónlistarskóla Garðabæjar hjá Snæbjörgu Snæbjarnardóttur söngkennara.

Snæbjörg varð áttræð á síðasta ári en hún kenndi í ein þrjátíu ár við skólann og útskrifaði fjölda góðra söngvara. „Mér fannst mjög við hæfi að heiðra Snæbjörgu,“ segir Ingibjörg. „Bæði lærði ég hjá henni öll mín ár í tónlistarskólanum hér og svo tengist hún mér að því leyti að hún er móðursystir mannsins míns. Hún kynnti okkur þannig að það er henni að þakka að við erum hjón í dag. Það var mín gæfa að lenda í námi hjá henni þegar ég var sautján ára, bæði sem söngkonu og í einkalífinu.“

Dagskrá tónleikanna í kvöld er fjölbreytt. „Þetta eru klukkutíma tónleikar og efnisskráin er mjög blönduð,“ segir Ingibjörg. „Þetta eru lögin sem Snæbjörg var að miðla mér í gamla daga, alveg frá klassísku íslensku lögunum yfir í þýsk ljóð og óperuaríur. Og svo er þarna léttmeti með.“ Tónleikarnir í kvöld eru þeir síðustu á þessu vori en Ingibjörg segir að strax og haustar fari tónleikaröðin af stað aftur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.