Óbreytt atvinnleysi innan OECD Óli Kristján Ármannsson skrifar 12. júní 2013 07:00 Efnahagsástand á Spáni er mjög báborið. Hér krefst fólk refsinga yfir stjórnendum Banco Santander bankans. Í landinu er meira en fjórðungur án atvinnu. Nordicphotos/AFP
Ísland er í hópi þeirra ríkja innan Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, þar sem atvinnuleysi er hvað minnst. Í nýjum tölum OECD kemur fram að fyrstu þrjá mánuði ársins hafi atvinnuleysi hér verið 5,6 prósent, en á því tímabili eru ekki mörg lönd undir fimm prósenta atvinnuleysi. Aðeins er þar um að ræða S-Kóreu með 3,3 prósent, Noreg með 3,6 prósent, Japan með 4,2 prósenta atvinnuleysi og Austurríki þar sem atvinnuleysi mældist 4,9 prósent. Hér hefur atvinnuleysi farið minnkandi síðan þá og mældist í 4,9 prósent í apríl, samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. Í nýjum tölum OECD kemur fram að atvinnuleysisstig innan landa stofnunarinnar hafi verið óbreytt milli apríl og mars, 8,0 prósent. Í löndum evrunnar náði atvinnuleysi hins vegar nýju meti í apríl með 0,1 prósents hækkun milli mánað og fór í 12.2 prósent. Er það 1,3 prósentustigum yfir fyrra meti á miðjum tíunda áratug síðustu aldar. Þá dró úr atvinnuleysi í Bandaríkjunum í apríl þar sem það fór í 7,5 prósent. Lækkunin nam 0,1 prósentustigi. Sambærileg lækkun átti sér stað í S-Kóreu þar sem atvinnuleysi mældist 3,3 prósent og í Japan þar sem atvinnuleysi fór í 4,1 prósent. „Nýrri tölur frá því í maí benda til þess að atvinnuleysi hafi aukist á ný í Bandaríkjunum um 0,1 próssentustig,“ segir í nýjustu umfjöllun OECD. „Þróun atvinnuleysis innan OECD hefur verið mjög mismunandi frá upphafi fjármálakreppunnar,“ segir þar jafnframt. Alls eru 48,5 milljónir manna sagðar hafa verið án atvinnu innan landa OECD í apríl á þessu ár, 200 þúsundum fleiri en í mars og 13,7 milljónum fleiri en í júlí 2008.
Mest lesið Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Viðskipti innlent Okkar eiginn Zuckerberg: Doktorinn sem er með alla risana í viðskiptum Atvinnulíf Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Viðskipti innlent Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Samstarf Airbnb aukið ójöfnuð Viðskipti innlent Eldaðu maður Viðskipti innlent Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Eintak af dýrustu bók heims seldist á 1,3 milljarða Viðskipti erlent Bankahólfið: Engin þota Viðskipti innlent Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Sjá meira