Ríki deila nú frekar skattupplýsingum Óli Kristján Ármannsson skrifar 19. júní 2013 07:00 Frá Lúxemborg. Ríkisskattstjóri segir ítrekað hafa verið fjallað um skatta á vettvangi OECD síðustu ár. Á mörgum fundanna hafi afstaða ríkja á borð við Lúxemborg os Sviss hafa valdið ákveðnum vonbrigðum. Nordicphotos/AFP
Gífurlegum fjárhæðum er haldið utan heimalanda án þess að greiddar séu af þeim skattar og gjöld, að því marki sem skattgreiðendur skjóta sér undan skilum í heimalöndum sínum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, sem birt var í gær í tilefni af fundi átta helstu iðnríkja (G8) á Írlandi. Í skýrslunni er fjallað um vitundarvakningu sem orðið hafi á meðal ríkja heims á nauðsyn þess að efla samstarf og upplýsingagjöf á sviði skattamála. „Núna er almennt mikið meiri skilningur á því í heiminum að þeir sem koma sér undan greiðslu skatta eru að flytja skattbyrðina yfir á samborgara sína aðra eða önnur ríki. Og þegar þrengir svona mikið að þá geta menn náttúrlega ekki fallist á að menn láti einhverja aðra greiða reikningana sína,“ segir Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri. Skúli Eggert segir að hér á landi fáum við umtalsvert magn af upplýsingum frá öðrum ríkjum og gefum upplýsingar á móti. Ísland hafi nýverið komið mjög vel út úr úttekt sem gerð hafi verið á upplýsingaskiptum á milli landa innan OECD. „Þetta er allt að opnast og hefur horfið til mun betra horfs en verið hefur undanfarin ár. Orðinn er alþjóðlegur skilningur á því að berja þurfi þessa múra niður.“ Spurning sé hversu mikið sé hægt að horfa til fortíðar í gagnaöflun en í það minnsta til framtíðar horft sé ljóst að skattaskjólum fari fækkandi. „Það er orðið erfitt að koma fyrir fjármunum og fela, hvort sem það er fyrir skattyfirvöldum, kröfuhöfum eða öðrum.“ Miklu betri horfur séu á því nú en verið hafi að hægt verði að koma þessum málum öllum upp á yfirborðið. „Þar með skiptir auðvitað miklu máli að takist að upplýsa um eignarhald á þessum félögum í þessum aflandsríkjum, því það hefur verið eitt mesta vandamálið, að fá ekki upplýsingar um eigendur félaga. Svo er það líka samkeppnismál.“ Í skýrslu OECD í tilefni af fundi G8 ríkjanna er lögð fram áætlun um næstu skref í samræmingu upplýsinga sem ríki deili með sér og þá tækni sem liggja þurfi að baki. Þannig hafi Evrópuríkin Frakkland, Þýskaland, Ítalía, Spánn og Bretland, í samvinnu við Bandaríkin, unnið að hönnun grunnupplýsingakerfis sem fjármálafyrirtæki getið notað í samskiptum við skattyfirvöld, sem svo aftur deili með sér gögnum á milli landa á sjálfvirkan máta. Skúli Eggert segir erfitt að geta sér til um hvernær slík upplýsingagjöf geti orði almenn um heim allan, dálítið mismunandi sé eftir löndum hvernig gangi að koma á umbótum. Í öllum meginatriðum stefni hins vegar í rétta átt. Nú þegar eru 55 ríki, innan sem utan OECD, aðilar að sáttmála um aukna upplýsingagjöf á sviði skattamála.
Mest lesið Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Viðskipti innlent Okkar eiginn Zuckerberg: Doktorinn sem er með alla risana í viðskiptum Atvinnulíf Airbnb aukið ójöfnuð Viðskipti innlent Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Viðskipti innlent Eldaðu maður Viðskipti innlent Eintak af dýrustu bók heims seldist á 1,3 milljarða Viðskipti erlent Bankahólfið: Engin þota Viðskipti innlent Áfrýjar í Imon-málinu Viðskipti innlent Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Grettisgata drottnari heimagistingarinnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Sjá meira