Menning

Efna til fyrsta samflotsins í september

Sara McMahon skrifar
skipuleggja samflot Systurnar hjá Systrasamlaginu eru á meðal þeirra er standa að samfloti í Sundlaug Seltjarnarness.
skipuleggja samflot Systurnar hjá Systrasamlaginu eru á meðal þeirra er standa að samfloti í Sundlaug Seltjarnarness. Fréttablaðið/Stefán
„Við ætlum að efna til fyrsta samflotsins þann 2. september. Við fáum þá hluta laugarinnar til að fljóta og njóta,“ segir Guðrún Kristjánsdóttir hjá Systrasamlaginu. Verslunin, sem Guðrún rekur ásamt Jóhönnu systur sinni, hefur tekið höndum saman við vöruhönnuðinn Unni Valdísi Kristjánsdóttur og Sundlaug Seltjarnarness og skipulagt sérstök flotkvöld sem munu fara fram í lauginni í vetur.

„Framkvæmdastjóri laugarinnar stakk svo upp á því að fá Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness til liðs við okkur síðar í vetur, mér fannst það stórkostleg hugmynd. Það er líklega fátt yndislegra en að fljóta um og horfa upp í stjörnubjartan himinn.“

Að sögn Guðrúnar er notast við flothettu og fótaflot sem eru hönnuð á þann hátt að fólk flýtur en líkaminn er þó ávallt undir vatni. Laugin rúmar um fimmtán manns í fyrstu flotstundinni en rými er til að taka við fleirum sé aðsókn mikil. „Til að byrja með höfum við pláss fyrir um fimmtán manns, en við ættum að geta stækkað við okkur eftir þörfum. Ég vona að þetta verði til þess að innleiða nýja og skemmtilega siði í baðmenningu þjóðarinnar,“ segir Guðrún að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.