Menning

Tríó Sunnu Gunnlaugs túrar um landið

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
 Áfangastaðirnir í túrnum eru Reykjavík, Grindavík, Akureyri og Ísafjörður
Áfangastaðirnir í túrnum eru Reykjavík, Grindavík, Akureyri og Ísafjörður .Mynd/Hörður Sveinsson
Diskurinn kom reyndar út í júlí en við vorum öll úti um hvippinn og hvappinn þannig að við náðum ekki að halda neina tónleika þá,“ útskýrir Sunna Gunnlaugs spurð hvað valdi því að tríó hennar er að leggja upp í tónleikaferð um landið til að kynna diskinn Distilled, sem hlotið hefur mikið lof í erlendum tónlistartímaritum undanfarið.



Fyrstu tónleikarnir eru í Hannesarholti í kvöld og þar verður tríóið aftur annað kvöld, en síðan liggur leiðin út á land og viðkomustaðirnir eru Grindavík, Akureyri og Ísafjörður. „Við spilum svo sjaldan hér heima,“ segir Sunna. „Ég man ekki einu sinni hvenær tríóið var seinast með tónleika á Íslandi, þannig að það var kominn tími til að leyfa fólki að heyra í okkur.“



Sunna bjó lengi í New York, en flutti heim fyrir nokkrum árum ásamt manni sínum Scott McLemore, sem er trommuleikari tríósins. Með þeim í tríóinu er Þorgrímur Jónsson bassaleikari.



Þið eruð samt alltaf með annan fótinn úti, ekki satt? „Jú, við spilum miklu meira úti heldur en hérna heima. Við erum einmitt að fara til Þýskalands og Danmerkur í mars til að kynna nýja diskinn og svo erum við að vinna í að komast á kanadískar djasshátíðir næsta sumar.“



Distilled hefur eins og áður sagði hlotið einróma lof gagnrýnenda, til dæmis valdi djassgagnrýnandi Rhapsody hann sem einn af tíu bestu diskum septembermánaðar.

Diskurinn fékk einnig nýlega umfjöllun hjá London Jazz News sem segir Sunnu vera „sérlega smekklegan píanista“ og diskinn vera „ferskan og óaðfinnanlega fram settan af þéttu tríói, stútfullu af hugmyndum.“ Jazznytt í Noregi mælir með Distilled í nýjasta tölublaði sínu og Jazz Japan gefur honum einnig frábæra dóma og segir „stemningu disksins ná hæðum sem einungis topp-tónlist nær.“ Áheyrendur á væntanlegum tónleikum ættu því að eiga von á góðu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.