Menning

Ragnar með gjörning í Tate Modern-safninu

Ragnar Kjartansson flytur gjörninginn í kvöld klukkan 19.
Ragnar Kjartansson flytur gjörninginn í kvöld klukkan 19.
Listamaðurinn Ragnar Kjartansson flytur gjörning í hinu fræga Tate Modern-listasafni í London í kvöld klukkan 19.

Verkið er hluti af gjörningadagskrá safnsins sem er sérstaklega hönnuð fyrir alnetið og geta áhorfendur um heim allan fylgst með á netinu í rauntíma.

Gjörningur Ragnars heitir Variation of Meat Joy, eða tilbrigði við kjötgleði, og í honum nýtir listamaðurinn sér efnivið og töfra leikhússins. Verkið á sér stað á hinu óræða svæði milli þess að gera eitthvað raunverulega og að þykjast. Í verkinu vísar Ragnar til frægs gjörnings Carolee Schneeman, Meat Joy, en gjörningurinn fer þannig fram að yfirborði gjörningaherbergisins er breytt í rókokkóborðstofu með því að mála veggina og stilla upp leikmunum.

Til borðs sitja prúðbúnir gestir klæddir í anda tímabilsins, sem koma saman til þess eins að borða eintóma steik. Hljóðin þegar steikin er tuggin og henni kyngt eru mögnuð upp og og óma jafnvel í heyrnartólum áhorfenda við tölvuna.

Eins og áður sagði er gjörningurinn sýndur beint á netinu í kvöld klukkan 19. Áhorfendum gefst bæði kostur á að spjalla hverjum við annan meðan á gjörningnum stendur og einnig að spyrja listamanninn spurninga í gegnum netið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.