Menning

Skuggalegt jólatré í Kringlunni

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Bækur Arnaldar Indriðasonar koma alltaf út 1. nóvember á Íslandi.
Bækur Arnaldar Indriðasonar koma alltaf út 1. nóvember á Íslandi.
Bækur Arnaldar Indriðasonar Koma alltaf út fyrsta nóvember og margir líta á þær sem einn af boðum jólanna.

Starfsfólk Forlagsins mun af því tilefni reisa jólatré úr nýjustu bókinni, Skuggasundi, í Kringlunni í dag og verður útgefandinn sjálfur, Jóhann Páll Valdimarsson, þar fremstur í flokki.

Um þúsund bækur verða notaðar til að byggja tveggja metra hátt tré en það er þó stranglega bannað að byrja að lesa eða stelast í bókina fyrr en eftir miðnætti á útgáfudegi höfundar.

Skuggasund er sautjánda bók Arnaldar Indriðasonar en í henni fetar hann ótroðnar slóðir í fylgd nýrra sögupersóna; annars vegar í samtímanum og hins vegar á árum síðari heimsstyrjaldar.

Skuggasund hefur nú þegar hlotið virt alþjóðleg bókmenntaverðlaun: hin spænsku PREMIO RBA DE NOVELA NEGRA 2013 sem veitt eru fyrir óútgefna glæpasögu og var sagan valin úr hátt í tvö hundruð handritum frá ýmsum löndum. Bókin kemur samtímis út á spænsku og íslensku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.