Lífið

Hátíðarförðun fyrir jólin með MAC og Smashbox

Marín Manda skrifar
Divine night colour collection er Jólalínan hjá MAC og er hún mjög fáguð í ár. Línan einkennist af seventís-lúxusrokkpartíþema og inniheldur fjölbreytt úrval af steinefnaaugnskuggum og eyelinerum, cremesheen-glossum og steinefnakinnalitum.

Wondervision-línan frá Smashbox höfðar til allra með augnskuggapallettum í brúnum, bláum, brons, ferskju, túrkis, gráum og fjólubláum tónum. Smashbox eru einna frægastir fyrir præmerana sína sem slétta húðina og gera hana lýtalausa. Liquid Halo-farðinn frá Smashbox er fyrstur sinnar tegundar og gefur hann miðlungsþekju á sama tíma og hann dregur fram náttúrulegan húðtón og inniheldur gelhúðuð litarefni sem gefa húðinni fallega áferð og náttúrulegan ljóma.

Sigríður Hrönn Guðmundsdóttir - MAC

Mikil áhersla er lögð á augum í þessari förðun. Plómuliturinn dregur fram augnlitinn, þykkur 60‘ eyeliner í svargráum lit, mikill maskari og gerviaugnhár til þess að toppa lúkkið. Á húðina var notaður léttur farði og steinefnavörur hér og þar til þess að gefa húðinni ljóma. Til að skyggja kinnbeinin var notaður kaldur brúnn kinnalitur. Varirnar voru farðaðar í beige tóni.

Ólöf Ragna Árnadóttir - MAC

Varir og glossáferð var áberandi í þessari förðun. Húðin er létt og ljómandi. Á augnlokunum er brúnn krem-augnskuggi. Því næst var settur steinefnaaugnskuggi í fjólubláum lit, mikill maskari á augnhárin og í lokin hellingur af glæru varaglossi yfir augnlokin til þess að láta augun poppa enn meira út. Á húðina var notaður steinefnaaugnskuggi til að lýsa upp svæði til að fá húðina til að ljóma. Á vörunum er dökkfjólublár varalitur og rauður kremgloss yfir.

Liv Elísabet Friðriksdóttir - Smashbox

Aðalfókusinn í þessari förðun er á að hafa húðina glóandi og sem náttúrulegasta. Hún er með præmer og Liquid Halo-farða. Púðrað yfir með Halo-steinefnapúðri og skyggt létt með Suntan Matte. Ljóminn er gefinn með Pearl Highlighting Wand. Brons-, ferskju- og brúntóna-augnskuggapallettan var notuð á augun til að ýta undir fallega rauða hárlitinn. Full Exposure-maskarinn til að lengja og þykkja augnhárin. Plómulitaði varaliturinn heitir Fig.

Kristín Lea Sigríðardóttir - Smashbox

Augnskugginn er úr brún-blátóna pallettunni. Því næst er svartur eye liner, Full Exposure-maskari og gerviaugnhár til að fá dramatískara útlit. Primer var settur undir Liquid Halo-andlitsfarðann. Til að birta augnsvæðið var settur Under Eye Primer og Photo Op. Þar eftir var púðrað yfir með Halo-steinefnapúðri og skyggt með Halo bronzer. Á kinnbeinin var settur Halo Warm glow og highlight-að með Gold Highlighting Wand efst á kinnbein og undir augabrúnir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.