Páll Axel og Smith sjóðheitir í Stykkishólmi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. janúar 2014 21:01 Páll Axel Vilbergsson. Vísir/Vilhelm
Páll Axel Vilbergsson og Benjamin Curtis Smith fóru á kostum í fjórtán stiga sigri Skallagríms á Snæfelli, 98-84, í Stykkishólmi í kvöld í 13. umferð Domnios-deildar karla í körfubolta. Páll Axel skoraði 30 stig í leiknum þar af 21 í fyrri hálfleiknum sem Skallagrímsmenn unnu 52-41. Páll Axel skoraði sjö þriggja stiga körfur í leiknum en hann hitti úr 5 af 7 þriggja stiga skotum sínum í fyrri hálfleik. Benjamin Curtis Smith (49 stig, 6 stoðsendingar) var í miklu stuði eins og Páll Axel og Hólmararnir réðu ekkert við þessa tvo frábæru leikmenn sem voru með 79 stig og 14 þriggja stiga körfur saman í kvöld. Skallagrímsliðið skoraði alls sextán þrista í leiknum eða níu fleiri en Snæfellsliðið. Skallagrímsmenn voru búnir að tapa fjórum leikjum í röð fyrir leikinn og fengu þarna mjög dýrmæt stig í fallbaráttunni. Snæfellsliðið varð hinsvegar að sætta sig við þriðja tapið í röð og enn eftir að vinna leik með nýja Bandaríkjamanninn Travis Cohn III innanborðs. Cohn var með 11 stig, eina stoðsendingu og fimm villur í leiknum í kvöld. Sigurður Þorvaldsson var stigahæstur hjá Snæfelli með 26 stig.Snæfell-Skallagrímur 84-98 (18-30, 23-22, 17-24, 26-22)Snæfell: Sigurður Á. Þorvaldsson 26/10 fráköst, Sveinn Arnar Davíðsson 11/10 fráköst/5 stoðsendingar, Travis Cohn III 11, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 11/5 stoðsendingar, Kristján Pétur Andrésson 11/4 fráköst, Jón Ólafur Jónsson 6/5 fráköst, Snjólfur Björnsson 6, Stefán Karel Torfason 2.Skallagrímur: Benjamin Curtis Smith 49/7 fráköst/6 stoðsendingar, Páll Axel Vilbergsson 30, Egill Egilsson 4/7 fráköst, Davíð Ásgeirsson 4, Trausti Eiríksson 3/7 fráköst, Ármann Örn Vilbergsson 3/4 fráköst, Orri Jónsson 3, Sigurður Þórarinsson 2/4 fráköst.
Dominos-deild karla Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Sjá meira