Barcelona með stæl inn í undanúrslitin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. janúar 2014 22:50 Vísir/NordicPhotos/Getty
Barcelona er komið í undanúrslit spænska konungsbikarsins í fótbolta eftir 5-1 sigur á Levante í kvöld í seinni leik liðanna í átta liða úrslitum bikarkeppninnar. Barcelona vann samanlagt 9-2. Alexis Sánchez skoraði tvö mörk fyrir Barcelona í kvöld en þeir Adriano Correia, Carles Puyol og Cesc Fàbregas voru líka meðal markaskorara. Sergi Roberto skoraði reyndar sjálfsmark á 9. mínútu og setti smá spennu í einvígið en þeir Adriano Correia (28. mínúta) og Carles Puyol (44. mínúta) komu Barcelona yfir fyrir hálfleik. Alexis Sánchez skoraði síðan tvö mörk á fyrstu sjö mínútunum í seinni hálfleiknum og gerði endanlega út um leikinn. Það var síðan Cesc Fàbregas sem skoraði fimmta markið og síðasta mark Börsunga á 68. mínútu. Lionel Messi, Gerard Piqué og Jordi Alba voru á bekknum allan tímann, Neymar er meiddur og Xavi var ekki í hóp. Andrés Iniesta spilaði bara fyrri hálfleikinn en það skipti ekki máli því það var aðeins formsatriði fyrir Börsunga að ganga frá sæti sínu í undanúrslitunum eftir 4-1 útisigur í fyrri leiknum. Real Madrid komst áfram í undanúrslitin í gær og Atlético Madrid fyrr í kvöld eftir 2-1 sigur á Athletic Bilbao. Atlético Madrid vann fyrri leikinn 1-0 á heimavelli en lenti 1-0 undir í kvöld. Raúl García og Diego Costa skoruðu báðir í seinni hálfleik og tryggðu Atlético leik á móti nágrönnum sínum í Real Madrid í undanúrslitunum. Barcelona mætir annaðhvort Real Sociedad eða Racing de Santander í undanúrslitunum en Real Sociedad vann fyrri leikinn 3-1.
Spænski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti Fleiri fréttir Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Sjá meira