Settar skorður í útgjöldum Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 13. febrúar 2014 15:15 Bernie Ecclestone. vísir/getty
Árið 2015 munu liðin í Formúlu 1 þurfa að halda sig innan 200 milljón evra í útgjöld. Það er gert til þess að jafna hlut liðanna. Stærstu liðin í dag eru að verja gríðarlegum fjármunum eða rúmum 47 milljörðum króna á hverju ári. Bernie Ecclestone hefur sagt að öll liðin hafi sammælst um 200 milljón evra þak. Sem er rúmlega 31 milljarður króna. Ljóst er að einhver lið þurfa að hagræða sínum rekstri. Ecclestone ætlast ekki til að farið verði mjúklega að liðum sem brjóta þessar reglur. Hugmyndin er að liðin missi í refsiskyni úr stigasöfnun sinni þrjár keppnir sem skilað hafa liðinu flestum stigum. Einnig vill Ecclestone borga hverjum þeim sem getur veitt sannanir fyrir broti liða vegleg laun fyrir eða 1 milljón evra (156 milljónir króna). Þessar aðgerðir segir hann nauðsynlegar til að gera íþróttina stöðugari. Einhverjir ökumenn fengu ekki greidd laun í lok síðasta tímabils vegna fjárskorts liða sinna. Kimi Raikkonen var til að mynda hættur að fá launagreiðslur frá Lotus. Han er nú orðinn ökumaður Ferrari. Lotus fékk Pastor Maldonado í sínar raðir og með honum þó nokkuð af styrktaraðilum.
Formúla Mest lesið Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Körfubolti Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Enski boltinn Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Körfubolti Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Enski boltinn Fleiri fréttir Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúlu 1 ungstirnið viðurkennir að hafa fallið á ökuprófinu Eiginkona Michael Schumacher í áfalli Dómur fallinn: „Þetta var viðbjóðslegt af mér og ég tek fulla ábyrgð“ Hamilton klessti Ferrari-inn á fyrsta degi Arftaki Hamiltons fékk bílprófið sex vikum fyrir fyrstu keppni tímabilsins Mun harðari refsingar á nýju formúlu 1 tímabili Hamilton gæti ekki verið spenntari fyrir komandi tímabili Sjá meira