Heilsa

Hollur súkkulaði- og karamelludrykkur

Ragnheiður Guðmundsdóttir skrifar
Hollur súkkulaði- og karamelludrykkur
Hollur súkkulaði- og karamelludrykkur Mynd/Getty

Þessi dásamlegi drykkur er frábær til þess að koma í stað óhollra sætinda þegar sykurlöngunin hellist yfir. Hann er bæði næringarríkur og fullur af andoxunarefnum.

Uppskrift fyrir einn.

1 bolli lífrænt kókosvatn

2 msk hrákakóduft

1 frosinn banani

10 macadamia hnetur

2 steinlausar döðlur

1 tsk maca duft

3 dropar af karamellu steviu

1 lúka af ísmolum

Bætið svo örlítlu sjávarsalti út í. 

Skellið öllu saman í blandara og njótið!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.