Logi hefur ekki skorað meira í Evrópuleik í tæp sjö ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. ágúst 2014 21:30 Logi Gunnarsson. Vísir/Vilhelm
Logi Gunnarsson fór fyrir sóknarleik íslenska körfuboltalandsliðsins í tapinu í Bosníu í undankeppni EM 2015 í Tuzla í kvöld en hann var stigahæstur í íslenska liðinu í leiknum með 18 stig. Íslenska liðið tapaði leiknum með tíu stigum, 62-72, en vann sig aftur inn í leikinn í fjórða leikhlutann sem liðið vann 29-16. Íslenska liðið vann tvo leikhluta af fjórum í leiknum því liðið vann annan leikhlutann 17-12. Logi hefur ekki skorað meira í Evrópuleik í tæp sjö ár eða síðan að hann skorað 21 stig á móti Lúxemborg í Lúxemborg 1. september 2007. Þetta var fimmti stigahæsti Evrópuleikur Loga sem hefur spilað 44 Evrópuleiki með íslenska landsliðinu. Logi setti niður þrjá þrista í leiknum og varð þar með sjötti leikmaðurinn sem nær að skora 50 þrista í Evrópuleikjum með íslenska landsliðinu. Logi er nú í 4. til 6. sæti með 51 þrist ásamt þeim Páli Axel Vilbergssyni og Helga Jónasi Guðfinnssyni en hann vantar sex þrista til að ná Guðjóni Skúlasyni í þriðja sætinu.Flest stig Loga Gunnarssonar í einum Evrópuleik: 29 stig - á móti Slóveníu í Laugardalshöll 29. nóvember 2000 24 stig - á móti Sviss í Njarðvík 29. ágúst 2001 23 stig - á móti Lúxemborg í Keflavík 13. september 2006 21 stig - á móti Lúxemborg í Lúxemborg 1. september 2007 18 stig - á móti Danmörku í Keflavík 3. september 2005 18 stig - á móti Bosníu í Tuzla 17. ágúst 2014 17 stig - á móti Georgíu í Laugardalshöll 29.ágúst 2007 17 stig - á móti Austurríki í Smáranum 29. ágúst 2009
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Sjá meira