100 ára afmæli kosningarétts kvenna kostar 104 milljónir Kjartan Atli Kjartansson skrifar 9. september 2014 17:48 Þessi mynd var tekin á Kvenréttindadeginum, þann 19. júní árið 2011, þegar blómsveigur var lagður á leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur.
Gert er ráð fyrir 60 milljón króna framlagi til hátíðarhalda vegna 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna á Íslandi á næsta ári. Af sama tilefni var gert ráð fyrir 44 milljón króna útgjöldum vegna undirbúnings hátíðarhaldanna á fjárlögum yfirstandandi árs og er því alls gert ráð fyrir að 104 milljónir króna fari í að halda upp á að 100 ár eru síðan konur fengu kosningarétt. Í fjárlögum næsta árs segir: „Óskað er eftir 60 m.kr. framlagi á þennan lið en það jafngildir 16 m.kr. hækkun að raungildi frá fjárlögum yfirstandandi árs. Breytingarnar eru tvær. Niður fellur 44 m.kr. tímabundið framlag sem veitt var í fjárlögum 2014 til undirbúnings fyrir 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Á móti er sótt um 60 m.kr. tímabundið framlag í eitt ár vegna fyrirhugaðra hátíðarhalda í tilefni þess að þann 19. júní 2015 verða 100 ár frá því að íslenskar konur fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis.“ Á vef Kvennasögusafnsins segir um kosningarétt kvenna:„Þann 19. júní 1915 fengu íslenskar konur 40 ára og eldri langþráðan kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Baráttan hafði þá staðið yfir frá árinu 1885 en þá skrifaði Valdimar Ásmundsson grein um stjórnmálaréttindi kvenna í blað sitt Fjallkonuna og sömuleiðis Bríet Bjarnhéðinsdóttir, og Páll Briem hélt opinberan fyrirlestur um kosningarétt og önnur réttindi kvenna.Árið 1894 var stofnað í Reykjavík Hið íslenska kvenfélag og hafði það jafnrétti kynjanna og þátttöku kvenna í opinberum málum á stefnuskrá sinni. Félagið safnaði 2000 undirskriftum með áskorun til Alþingis um að veita konum kosningarétt árið 1895. Þetta var fyrsta opinbera krafan um kosningarétt kvenna sem skipulögð samtök kvenna lögðu fram.“
Alþingi Mest lesið Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Sjá meira