Sebastian Vettel til Ferrari Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 4. október 2014 07:45 Kimi Raikkonen og Sebastian Vettel verða líklega liðsfélagar á næsta ári. Vísir/Getty
Fjórfaldi heimsmeistarinn Sebastian Vettel hefur tekið ákvörðun um að yfirgefa herbúðir Red Bull þar sem hann hefur unnið alla sína titla í Formúlu 1. Vettel sagðist einfaldlega vilja breyta til. Hann sagðist vera að fara frá stað sem væri erfitt að yfirgefa. Einnig ítrekaði Vettel að ákvörðunin hefði ekkert með gengi liðsins á tímabilinu að gera. Líklega væri þó tóninn annar ef hann væri á leiðinni að sínum fimmta titli með liðinu. Ýtir þessi tilkynning undir orðróm um að Fernando Alonso sé á förum frá Ferrari yfir til McLaren, þó hefur ekkert fengist endanlega staðfest um það. Vettel greindi liðsstjóra Red Bull, Christian Horner frá ákvörðun sinni í gærkvöldi. „Hann sagði okkur frá þessu í gærkvöldi og hafði sínar ástæður fyrir því. Ég held að hann hafi ekki átt auðvelt með þessa ávörðun. En ef hann vill vera annars staðar þá ætlum við ekki að stöðva hann,“ sagði Horner. „Frá og með 1. janúar verður hann keppinautur okkar. Hann verður Ferrari ökumaður,“ bætti Horner við. Vettel hefur verið viðloðinn liðið í 15 ár. Líklega hefur Ferrari verið of freistandi kostur. Daniil Kvyat hefur verið staðfestur arftaki Vettel hjá Red Bull. Marco Mattiacci, liðsstjór Ferrari vildi lítið gefa upp um málið. „Ég hef verið upptekinn við annað, ef þeir (Horner og Helmut Marko) vilja tilkynna svona hluti fyrir okkur þá gera þeir það bara,“ sagði Mattiacci. Hvernig rautt fer Vettel á eftir að koma í ljós, fær hann það sem hann vill hjá ítalska risanum? Er Vettel að leggja upp í endurreisnarverkefni með Ferrari, ævintýri sem gæti skilað öðru eins og því sem hann átti svo stóra þátt í hjá Red Bull? Það gæti verið það sem hann hugsar sér að gera.
Formúla Tengdar fréttir Rosberg á ráspól á Suzuka - Vettel fer frá Red Bull Nico Rosberg á Mercedes náði ráspól í Japan. Liðsfélagi hans, Lewis Hamilton varð annar og Valtteri Bottas á Williams varð þriðji. 4. október 2014 06:04 Max Verstappen sá yngsti frá upphafi Max Verstappen mun taka þátt í æfingu á föstudaginn fyrir japanska kappaksturinn. Hann verður þar með yngsti ökumaður sem hefur tekið þátt í keppnishelgi. En hann verður 17 ára í dag. 30. september 2014 15:00 Ricciardo: Lokakeppnirnar munu sanna hvor er hraðari Daniel Ricciardo hjá Red Bull telur að síðustu fimm keppnir tímabilsins muni skera úr um hvor ökumanna liðsins er hraðari, hann sjálfur eða fjórfaldi heimsmeistarinn Sebastian Vettel. 1. október 2014 21:30 Mercedes menn fljótastir á föstudegi - Alonso á förum frá Ferrari? Nico Rosberg varð fljótastur á fyrri æfingunni og liðsfélagi hans Lewis Hamilton var fljótastur á þeirri seinni. 3. október 2014 16:00 Vettel: Akstursstíll skýrir lélegt gengi Ríkjandi heimsmeistari í Formúlu 1, Sebastian Vettel segir að ósamræmi milli aksturseiginleika RB10 bílsins og eigin akstursstíls útskýra hvers vegna illa hefur gengið í ár. 25. september 2014 22:30 Mest lesið Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Körfubolti Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Enski boltinn Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti Fleiri fréttir Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúlu 1 ungstirnið viðurkennir að hafa fallið á ökuprófinu Eiginkona Michael Schumacher í áfalli Dómur fallinn: „Þetta var viðbjóðslegt af mér og ég tek fulla ábyrgð“ Hamilton klessti Ferrari-inn á fyrsta degi Arftaki Hamiltons fékk bílprófið sex vikum fyrir fyrstu keppni tímabilsins Mun harðari refsingar á nýju formúlu 1 tímabili Hamilton gæti ekki verið spenntari fyrir komandi tímabili Sjá meira
Rosberg á ráspól á Suzuka - Vettel fer frá Red Bull Nico Rosberg á Mercedes náði ráspól í Japan. Liðsfélagi hans, Lewis Hamilton varð annar og Valtteri Bottas á Williams varð þriðji. 4. október 2014 06:04
Max Verstappen sá yngsti frá upphafi Max Verstappen mun taka þátt í æfingu á föstudaginn fyrir japanska kappaksturinn. Hann verður þar með yngsti ökumaður sem hefur tekið þátt í keppnishelgi. En hann verður 17 ára í dag. 30. september 2014 15:00
Ricciardo: Lokakeppnirnar munu sanna hvor er hraðari Daniel Ricciardo hjá Red Bull telur að síðustu fimm keppnir tímabilsins muni skera úr um hvor ökumanna liðsins er hraðari, hann sjálfur eða fjórfaldi heimsmeistarinn Sebastian Vettel. 1. október 2014 21:30
Mercedes menn fljótastir á föstudegi - Alonso á förum frá Ferrari? Nico Rosberg varð fljótastur á fyrri æfingunni og liðsfélagi hans Lewis Hamilton var fljótastur á þeirri seinni. 3. október 2014 16:00
Vettel: Akstursstíll skýrir lélegt gengi Ríkjandi heimsmeistari í Formúlu 1, Sebastian Vettel segir að ósamræmi milli aksturseiginleika RB10 bílsins og eigin akstursstíls útskýra hvers vegna illa hefur gengið í ár. 25. september 2014 22:30