Haukarnir unnu í spennuleik í Hólminum - skoruðu 10 síðustu stigin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. október 2014 20:51 Emil Barja. Vísir/Valli
Haukarnir eru með fullt hús á toppi Dominos-deild karla í körfubolta eftir fimm stiga sigur á Snæfelli, 89-84, í Stykkishólmi í kvöld. Haukarnir fylgdu eftir sannfærandi sigri á Grindavík í fyrstu umferðinni með því að vinna æsispennandi leik í Fjárhúsinu í Hólminum. Haukar tryggðu sér sigurinn með því að skora tíu síðustu stigin í leiknum en Snæfellsliðið skoraði ekki síðustu tvær mínútur leiksins. Alex Francis atkvæðamestur hjá Haukum með 30 stig og 15 fráköst en Kári Jónsson skoraði 20 stig og Emil Barja var með 18 stig og 7 stoðsendingar. Sigurður Þorvaldsson átti stórleik hjá Snæfelli og skoraði 31 stig og tók 11 fráköst og Austin Magnus Bracey var með 16 stig. Willie Nelson skoraði síðan 14 stig og tók 14 fráköst. Snæfellsliðið var með fimm stiga forskot, 84-79, þegar tvær mínútur voru eftir en þá komu tíu stig í röð frá Haukum sem lönduðu sigrinum með því að fá ekki á sig stig í síðustu 134 sekúndur leiksins. Snæfell var 24-20 yfir eftir fyrsta leikhlutann og áfram með fjögurra stiga forskot í hálfleik, 47-43. Haukarnir byrjuðu seinni hálfleikinn mjög vel, skoruðu 12 stig gegn 3 og tóku frumkvæðið. Haukar voru 65-63 yfir fyrir lokaleikhlutann en leikurinn var hnífjafn allan seinni hálfleikinn.
Dominos-deild karla Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Sjá meira