Menning

Gerði styttu af eigin líkama

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Bryndís Hrönn var módel meðan átta manneskjur teiknuðu hana, hver frá sinni hlið.
Bryndís Hrönn var módel meðan átta manneskjur teiknuðu hana, hver frá sinni hlið.
Bryndís Hrönn Ragnarsdóttir myndlistarmaður er að undirbúa opnun sýningarinnar Psychotronics í Nýlistasafninu við Skúlagötu næsta laugardag. Þar er hún meðal annars með styttu af sjálfri sér, unna eftir teikningum sem átta manneskjur gerðu, hver frá sínu sjónarhorni.

Einnig er þar viðarlágmynd byggð á efni úr hljóðstúdíóum sem dreifa hljóðum og dempa það.

„Í styttunni af líkama mínum verða átta tvívíð verk að einu þrívíðu og lágmyndin er líka úr átta litlum flekum sem ég raðaði saman. Í innsta salnum er svo myndband þar sem líkami manneskju bregst við tónlistarflutningi. Einnig geta verið fleiri tengingar,“ segir Bryndís Hrönn þegar hún er spurð út í sýninguna.

Hún segir reyndar alltaf erfitt að lýsa listaverkum í orðum. „Maður vill ekki túlka of mikið eða taka afstöðu, heldur er allt spekúlasjón þegar að er gáð.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.