Menning

Myndir úr barnabókum síðasta árs

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Þetta vilja börnin sjá! Sýningin er á efri hæð Gerðubergs.
Þetta vilja börnin sjá! Sýningin er á efri hæð Gerðubergs.
Sýning á myndskreytingum í íslenskum barnabókum árið 2013 var opnuð í Gerðubergi í gær.

Hún hefur yfirskriftina Þetta vilja börnin sjá! og er haldin nú í tólfta sinn.

Sýningunni hefur verið sköpuð barnvæn umgjörð á efri hæð Gerðubergs. Þar eru myndir eftir 26 myndskreyta.

Fólk utan höfuðborgarsvæðisins fær líka tækifæri til að njóta myndanna og bókanna því Þetta vilja börnin sjá! er farandsýning sem leggur land undir fót þegar sýningartímanum í Gerðubergi lýkur en hann stendur til 30. mars næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.