Lífið

Sanngjarn og heiðarlegur þáttur

Mikael Torfason sér um nýjan þátt, Mín skoðun, sem hefst á Stöð 2 í febrúar.
Mikael Torfason sér um nýjan þátt, Mín skoðun, sem hefst á Stöð 2 í febrúar.
Þátturinn Mín skoðun í umsjón Mikaels Torfasonar, aðalritstjóra fréttamiðla 365, hefst sunnudaginn 2. febrúar klukkan eitt og verður í opinni dagskrá.



„Þetta er frétta- og þjóðmálaþáttur þar sem farið verður yfir málefni líðandi stundar. Þátturinn er hefðbundinn umræðuþáttur um stjórnmál og önnur þjóðmál með þeirri undantekningu að þáttastjórnandinn hefur skoðun og tekur virkan þátt,“ segir Mikael. „Ég hef lengi ritstýrt dagblöðum og hef komið minni skoðun á framfæri í ákveðnum hluta blaðanna, í leiðara eða í skoðanahluta blaðanna. Hugmyndin með þættinum er að færa þann hluta dagblaðanna í sjónvarp. Flest dagblöð hafa fasta penna sem skrifa greinar þar sem þeirra sjónarmið fá að heyrast, það verður eins í þættinum, þar verða fastir gestir sem fá að segja sína skoðun á mönnum og málefnum.“

Sérfræðingar þáttarins eru þau Elliði Vignisson, Svandís Svavarsdóttir, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Össur Skarphéðinsson, Katrín Júlíusdóttir og Vigdís Hauksdóttir. Gaukur Úlfarsson sér um dagskrárgerð en um ritstjórn þáttarins sjá blaða- og fréttamenn 365-miðla auk Bergs Ebba Benediktssonar.

„Þó ég fái að hafa mína skoðun í þættinum kemur það ekki í veg fyrir að ég geti tekið viðtöl við fólk. Gestir þáttarins fá raunverulega að segja sína hlið, þátturinn á að vera sanngjarn og heiðarlegur og við munum leita sannleikans,“ segir Mikael.

Hann segir kveða við nýjan tón í þættinum sem verður að erlendri fyrirmynd og sambærilegur þáttum Piers Morgan á CNN, Bills O‘Reilly á Fox eða jafnvel Meet the Press á NBC. „Í þættinum verða mikilvæg samfélagsmál krufin og þau rædd frá öllum hliðum. Þetta verður sanngjarn og heiðarlegur þáttur fyrir alla sem láta sig þjóðmál á Íslandi varða.“


Tengdar fréttir

Léttir sprettir og réttir

Friðrika Hjördís Geirsdóttir, betur þekkt sem Rikka, mætir með nýjan þátt á Stöð 2 í febrúar. Í þættinum verða almenningsíþróttir teknar fyrir ásamt næringu og hollri matreiðslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.