Menning

Vetrarhátíð í Reykjavík hefst á morgun

 Frá setningarathöfn Vetrarhátíðar í fyrra.
Frá setningarathöfn Vetrarhátíðar í fyrra. Fréttablaðið/Daníel
Vetrarhátíð í Reykjavík verður sett annað kvöld og stendur hún til 15. febrúar. Markmið hátíðarinnar er að lýsa upp mesta skammdegið í febrúar með viðburðum og uppákomum af ýmsu tagi, stórum sem smáum en yfirskrift hátíðarinnar er Magnað myrkur!



Ljósalistaverk eftir innlenda og erlenda listamenn verða tendruð, ljósaviðburðir munu eiga sér stað um alla borg og verða byggingar og almenningsrými lýst upp með fjölbreyttum hætti. Jón Gnarr borgarstjóri mun setja Vetrarhátíð með því að tendra tíu ljósaverk samtímis annað kvöld klukkan 19.30 í garði Listasafns Einars Jónssonar.



Að setningunni lokinni hefjast tónleikarnir Denver Calling Reykjavík sem eru samstarfstónleikar tónlistarmanna frá Reykjavík og Denver í Colorado í Bandaríkjunum. Á tónleikunum stilla tónlistarmennirnir strengi sína saman og flytja tónlist hver annars. Íslensku tónlistarmennirnir eru Högni Egilsson, Lay Low og Snorri Helgason og frá Denver í Colorado í Bandaríkjunum koma Tyler Ludwick, Esmé Patterson og Jesse Elliott.



Meginstoðir Vetrarhátíðar 2014 verða Safnanótt, Sundlauganótt og Ljósalistaverk en aðrir skemmtilegir viðburðir hátíðarinnar eru til dæmis snjóskurður og heimsdagur barna. Nánari upplýsingar um dagskrárliði og dagsetningar er að finna á heimasíðu hátíðarinnar vetrarhatid.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.